Eftir stanslausa orðróma undanfarnar vikur er MacBook Pro línan komin með nýju Core i5 (2.4GHz og2.53GHz) og i7 örgjörvana (2.66GHz) frá Intel auk nýrrar hraðari sjálfvirkrar skjástýringar. 13″ tölvurnar eru reyndar ennþá með Core 2 Duo(2.4GHz og 2.66GHz) en skarta nú NVIDIA GeForce 320M, sem er sögð allt að 80% hraðari en forverinn. Bæði 15 og 17 tommu vélarnar eru komnar með nýju i5 og i7 örgjörvana og NVIDIA GeForce GT 330M, sem er sögð vera hraðasta skjástýringin á markaðnum. Hún búin nýrri tækni, sjálfvirki skiptingu sem ákveður hvor hluti skjástýringarinar er notaður en það er einkar hentugt þegar tölvan er í léttri vinnslu. i5 og i7 örgjörvarnir eru munu þurfa talsverða orku en kemur það þó ekki niður á batterílífi sem skýrist á betri nýtingu skjástýringarinnnar og mun batteríið endast í 8-9 klst. Vélarnar koma allar vélar með 4GB vinnsluminni (standard) og verðið er svipað og áður, frá $1199 upp í $2299.
Phil Schiller hafði orð á nýju vélunum:
“The new MacBook Pro is as advanced on the inside as it is stunning on the outside. With faster processors, amazing graphics and up to three more hours of battery life, the new MacBook Pro delivers both performance and efficiency.”





The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Flottar vélar en hvenær ætla þeir að skella sér í HDMI tengin og sleppa þessum DVI tengjum. Maður þarf hvort eð er nánast alltaf að kaupa breytistykki, væri ekki nær að hafa bara HDMI tengi og þá myndi maður nú mun sjaldnar þurfa breytistykki en ef þess þyrfti þá væri það nú frekar staðlað stykki þar sem margar tölvur eru komnar með svona tengi. Þeir hafa nú líka alveg pláss til að vera með HDMI tengi líka þarna þar sem þeir eru að nýskast á usb tengin. HDMI og fleiri usb þá væru þetta vélar uppá 10.0
Ég verð að vera sammála þér í því að það þurfi HDMI tengi. Finnst þetta samt mjög Apple legt. Það tók þá smá tíma að átta sig á því að markaðurinn vildi freka USB 2.0 heldur en Firewire 400 og svo eru SD-card slot svo til nýjung á Mökkunum…
Ætli þetta komi samt ekki á endanum.
Já en SD slot finnst mér ekkert vera nauðsyn, flestir sem eru mikið að nota minniskort beint inná vélar eru meira svona pro ljósmyndarar og eiga þeir nú flestir usb SD kortalesara við hin tengjun nú flest myndavélina beint í usb. Það er auðvitað aldrei hægt að vera með allt. Ég las einhversstaðar að þeir ætli að setja HDMI í mac mini vélarnar sem eru mikið notaðar eins og APPLE TV við sjónvarp þannig að þetta er í raun bara tímaspursmál hvenær þeir setja þetta í allar vélar. Mér finnst bara lang eðlilegast að Apple reyni að vera með þetta staðlað þannig að ef ein vél er með einhverju tengi ættu allar að vera með það.
Það ætti bara að gera HDMI að nýja standardnum fyrir ALLT.
Ég verð samt að segja að SD slottið er algör snilld þó það væri að sjálfsögðu betra ef kortin væru algengari!
Annars er ég sammála Kristóferi og Hannesi, þetta kemur endanum og það er ekki hægt að vera með allt.