iPad æðið

Það má vægast sagt segja að algjört „iPad æði“ gangi nú yfir heiminn, eða a.m.k. í Bandaríkjunum.

Lítið er annað að sjá en umfjallanir um iPad og gagnrýni á tæknisíðum og bloggsíðum og hefur tækið fengið mjög góða dóma á síðum á borð við Engadget og Gizmodo.

Tækið er þó ekki gallalaust (enda væri slíkt eitthvað skrítið) en kostir þess virðast vega stórt á móti þeim göllum sem fyrirfinnast. Það sem stendur mest uppúr þar er að tækið vantar s.k. „multitasking“, en á morgun kynnir Apple nýtt stýrikerfi fyrir jaðartæki á borð við iPhone og iPad og talið líklegt að sá „galli“ heyri sögunni til.

Persónulega er ég ekki búinn að prófa iPad, en á von á að það gerist fyrir eða eftir helgi og því verð ég að bíða með að skrifa dóma um það.

Hins vegar hefur ArsTechnica gefið út dóma um iPad sem eru heilar 18 bls. (á þeirra mælikvarða).

ArsTechnica eru þekktir fyrir vandaðar og góðar greinar og því mæli ég sterklega með að Apple aðdáendur lesi iPad dómana á vefsíðu þeirra, eða hér: arstechnica.com/apple/reviews/2010/04/ipad-review.ars

Til gamans má nefna að síðast var spurt á Maclantic hvort þú værir spennt(ur) fyrir iPad og tóku samtals 924 manns þátt og þar af svöruðu 56% játandi og 44% neitandi.

Það verður áhugavert að vita hvernig næstu úrslit líta út, en nú spyrjum við: Ætlarðu að kaupa þér iPad?

Endilega taktu þátt hér til hliðar. Úrslit eldri kannana má sjá á maclantic.is/kannanir.

0 svör við “iPad æðið”


  1. Engin svör

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!