iPad nýtist líka sem nótnabók…

Það er ýmislegt sem hægt er að nýta iPad í: lesa tímarit, bækur og hví ekki sem nótnabók?

MGS Development hefur kynnt forritið forScore fyrir iPad sem gerir tónlistarmönnum kleift að skoða nótur á iPad. Með forritinu mun fylgja 1300 bls. af klassískum verkum og svo mun forritið einnig hafa PDF-stuðning fyrir þá sem vilja fletta í gegnum sínar eigin eða aðrar nótur.

Ýmislegir fídusar eru í forritinu, en best er að skoða þá nánar á heimasíðu hugbúnaðarþróandans: www.forscoreapp.com

PS. Enn er ekki vitað hvort að forritið fletti sjálft á milli nótnablaða þegar spilað er, en möguleikarnir ættu að vera til staðar fyrir slíkan fídus þar sem iPad er með innbyggðan hljóðnema.

4 svör við “iPad nýtist líka sem nótnabók…”


  1. Gravatar Icon 1 Carlos Miðvikudagur 31. mars 2010 kl. 14:16

    Þá er nú betra að maður hafi stöðugt nótnastatíf!

  2. Gravatar Icon 2 Bjöggi Miðvikudagur 31. mars 2010 kl. 14:19

    Hehe, mikið satt.

    Nýtist samt vel á píanói.

  3. Gravatar Icon 3 Pondus Fimmtudagur 1. apríl 2010 kl. 21:04

    Dóttirinn er nú að verða ansi öflug á fiðluna og þetta kannski getur hjálpað manni að réttlæta kaupinn fyrir konunni. hehehehe

  4. Gravatar Icon 4 Laufey Föstudagur 9. apríl 2010 kl. 00:48

    Mig hefur dreymt um græju sem þessa í mörg ár til að nota í hljómsveit, þá sérstaklega til að setja inn merkingar eins og bogastrok og annað sem þarf að hafa eins hjá öllum hljóðfæraleikurum og tekur ótrúlega langan tíma að setja inn með blýanti.Ég hef líka hugsa oft um þetta með flettingar milli bls. hvort að það ætti að vera stillt inn af hljómsveitarstjóra eða kannski stjórnað með fótpedal. Ohhh, svo væri líka dásamlegt að getað…. stækkað letur og bara name it, transponerað í einum grænum….eða farið fyrr heim af æfingum þegar forritið krassar :roll:

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!