Leikjaframleiðandinn Valve hefur tilkynnt að leikir þeirra ásamt verslunin Steam verður fáanleg á Mac í apríl.
Steam er hugbúnaður sem gerir notendum kleift að kaupa leiki og hala þeim niður í gegnum netið. Þar að auki heldur það utan um alla leikina og eru CD/DVD diskar óþarfir.
Leikir sem byggja á Source tækninni munu virka á Mac í næsta mánuði, þar má nefna m.a. Left 4 Dead 2, Team Fortress 2, Counter-Strike, Portal og Half-Life leikina.
Þar að auki hefur verið staðfest að nýjasti leikurinn frá Valve, Portal 2, verður gefinn út á sama tíma fyrir Mac OS X og Windows.
Þessar fréttir eru án efa mjög stórar fyrir bæði framtíð Apple í leikjabransanum og okkur leikjanördana sem notum Mac OS X og viljum helst ekki snerta Windows.
Nánari upplýsingar: store.steampowered.com/news





The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur Apple menn.
Ég hef ekki spilað leiki á mac síðan á Macintosh SE :p
Yesss.. This is the moment of Truth
vá hvað ég öfunda ykkur að fá 6 ára gamla tölvuleiki á makkana ykkar! Kannski maður skipti bara yfir makka til að fá þau forréttindi að spila eldgamla leiki
Þetta er bara byrjunin,… Portal 2 á t.d. að koma út á sama tíma fyrir PC og Mac, fleiri leikir eiga eftir að fylgja í kjölfarið, og ekki er Left 4 Dead 2 gamall leikur…
Þannig að þegi þú þarna Gunnar PC gaur
Haha nkl.
Það er ekki eins og við séum að gleðja okkur yfir “eldgömlum” leikjum hérna, heldur að það sé loks eitthvað farið að gerast á leikjamarkaðinum fyrir makkann.
T.a.m. er Left 4 Dead 2 nokkuð nýr og svo kemur Portal 2… og fleiri leikir munu að öllum líkindum vera samferða þessu. Það er líka mun meira attraktívt fyrir leikjaframleiðendur að framleiða leiki og dreifa þeim á Mac þegar Steam er fyrir hendi.
Source-engine er líka bara byrjunin.
Allir Valve leikir sem eru innan við 2ggja ára gamlir eru:
-Left For Dead 2
-Left For Dead
-HL2: Episode 2
Leikir frá EA hafa líka verið seldir frá því þegar þeir voru gerðir…Gunnar, ég MANA þig til að prófa Mac…
EA seldir á mac frá upphafi:
-Sims
-Sims 2
-Sims 3
-Age of empires
-NFS: ProStreet
-NFS: Undercover
-NFS: Wanted
Og allan tíman var hægta að spila PC leiki á Mac með því að nota forritið:
———CrossOver Games———
- .EXE opener…
Gunnar minn við getum spilað alla leiki bæði pc og mac. Það eina sem breytist er að við þurfum ekki að keyra þetta windows drasl þegar leikjamarkaðurinn hjá mac veðrður orðin sambærilegur Pc.
Verður hægt að spila alla leiki á steam ?
t.d battlefield bad company 2 ..?