Ástæðan fyrir því að iPad styður ekki flash

Margir hafa furðað sig á því að enginn flash-stuðningur sé á iPad, nýjasta tækinu frá Apple. Mjög góð ástæða er fyrir því samkvæmt Steve Jobs, forstjóra Apple.

Á fundi sínum með Wall Street Journal (WSJ) komu fram punktar sem gefa góða ástæðu fyrir því að Apple styður ekki notkun flash:

  1. Flash er óöruggt (uppspretta öryggishola)
  2. Flash er mjög óstöðugt og veldur oft hruni forrita
  3. Flash notar afl tölvunnar (örgjörva) eins og enginn væri morgundagurinn
  4. Flash er deyjandi tækni; úreld
  5. Rafhlöðuending á iPad færi niður úr 10 klst. í 1,5 klst á fullri hleðslu ef flash-stuðningur væri fyrir hendi

Þar að auki mældi hann með að WSJ færðu sig yfir í tækni á borð við H.264 í stað flash.

Steve Jobs hefur nokkuð rétt fyrir sér hvað varðar punktana sem nefndir eru hér að ofan. Ákvörðun hans að hafa ekki flash-stuðning á iPad og iPhone verður að teljast nokkuð skynsamleg.

Ef fyrrnefndu tölur eru réttar má nefna að hleðsla á rafhlöðu iPad myndi minnka um 20% við að skoða t.d. mbl.is í korter með flash. Án flash myndi hún minnka um aðeins 2,5%.

Heimild: MacRumors.com

19 svör við “Ástæðan fyrir því að iPad styður ekki flash”


  1. Gravatar Icon 1 Haraldur Helgi Föstudagur 19. febrúar 2010 kl. 08:42

    Jáhh, ég er eiginlega bara feginn að iPad styðji ekki Flash.

    Er sjálfur í bullandi vandræðum með Flash í vélinni minni og skil því alveg þetta sjónarmið.

  2. Gravatar Icon 2 Hannes Föstudagur 19. febrúar 2010 kl. 10:07

    Fegin er ég að flash sé ekki því það er hvort eð er aðalega fyrir einhverjar auglýsingar sem enginn hefur áhuga á. En Flash er svo svakalega útbreytt að ég held að það sé ekki að fara að deyja út neitt á næstunni, það myndi taka nokkur ár.
    Veit einhver af hverju flash viðist ekki hafa eins slæm áhrif á pc tölvur með windows ??

  3. Gravatar Icon 3 Halcon Föstudagur 19. febrúar 2010 kl. 11:27

    Windows 7 mobile styður ekki heldur Flash – þannig að það á einnig eftir að ýta á eftir mönnum að skipta yfir í HTML5.

  4. Gravatar Icon 4 Halldór Eldjárn Föstudagur 19. febrúar 2010 kl. 15:32

    Ég get heldur ekki ímyndað mér hvernig sum Flash forrit ættu að virka á iPad … Eins og leikir sem nota lyklaborð, ekki færi maður að nota onscreen lyklaborð?

  5. Gravatar Icon 5 Rúnar Föstudagur 19. febrúar 2010 kl. 16:39

    Flash hefur líka slæm áhrif á PC. Er með Laptop í vinnunni og þegar ég er að nota vélina svitnar hún ekki, enn um leið og ég fer á flash-svæði þá fer vélargreyið að blása og bústa og svitna um leið.

    HTML5 held ég að verði málið, er ekki að sjá að H.264 verði einhver almennileg lausn enda er það eftir því sem ég veit best þjöppunarstaðall til afspilunar en ekki gagnvirk lausn eins Flash er oft.

  6. Gravatar Icon 6 brynjar Föstudagur 19. febrúar 2010 kl. 21:45

    Frá 10 klst niður í 1.5 klst, bara ef flash er virkjað??
    Finnst það nú hljóma kannski full ýkt.

    Þá væri auðvitað hægt að hafa flash “af” að jafnaði, en að notandi geti ræst það við síður sem hann þarf að nýta flash !

  7. Gravatar Icon 7 Daníel Föstudagur 19. febrúar 2010 kl. 22:20

    Sammála Brynjar, Það ætti að vera þarna að minsta kosti flash en með viðvörun sem segir að það étur batteríið, svo maður geti nú spilað kanski íslenska Facebook leikinn, Vikins of Thule, en í honum fær maður alskyns góðgæti bara við það að logga sig inn einu sinni á dag. En hvað ef maður er úti á landi í sumarbústað í fríi og maður þarf bara að logga sig inn í 10 sec, ohhh neeeeiiiiii það er ekki hægt.

    Flash er ekki deyjandi tækni, ef að það er eitthvað satt við þessa staðhæfingu að flash sé að deyja út þá er það sjálfum APPLE að kenna. Ef flash væri úrelt þú væri öllum sama, og apple hefði ekki komið upp með þessar ástæður.

    iPad keyrir ekki flash, þess vegna eru þessar battery life tölur ekki marktækar. Þetta hefur ekki verið mælt.

    Og ég býst við því að þetta muni frekar hvetja Adobe til þess að optimiza flash svo það verði minna CPU intensive heldur en að vefsíður fari allt í einu að nota eitthvern ofur hampaðan video staðal frá apple.

  8. Gravatar Icon 8 Daníel Laugardagur 20. febrúar 2010 kl. 00:04

    Og hvað er Steve Jobs að bulla um security issues. HAHAHA þvílíkar gegnsæjar lygar.

    Ég er flash forritari og ég hef aldrei upplifað það að browserinn minn krassi út af flash. Einnig þá er flash hannað þannig að það getur ekki stjórnað músinni sama hvað, og það getur ekki farið í fullscreen nema þú klikkir á það á sama ramma og það reynir að fara í fullscreen. Síðan getur það ekki öðlast aðgang að neinu í tölvunni þinni nema að þú leifir það sérstaklega hvert skipti. Það leyfir sér ekki einu sinni óhindraðann aðgang að webcamerunni þinni. Þú þarft að samþykja fyrst. Síðan er það þannig að flashið má ekki hafa samband við local files og global (á vefnum) files á sama tíma, þegar flashið er compilað “exportað” þá er það skráð hvort það má hafa aðgang að fælum á netinu eða tölvu notandans. Flash getur bara LESIÐ af global og local fælum, ekki skrifað… security loopholes MY ASS!!!

    Ég persónulega held að flash sé ekki að fara neitt á næstunni. Fyrir utan þetta Silverlight sem enginn er með installerað, og Java sem er nær óþekkt sem platform fyrir leiki á vefnum, er Flash eina leiðin í dag til þess að spila leiki í browser. Og jafnvel þótt að ekkert handheld í framtíðinni muni nokkurntímann keyra flash, þá munu krakkar og unglingar halda áfram að opna tölvurnar sínar í frímínútum og eiða sínum dýrmætu 10-20mín í leiki sem eru byggðir á “útdauðri” tækni.

  9. Gravatar Icon 9 Karlg Laugardagur 20. febrúar 2010 kl. 08:07

    Þetta segjir meira um hvað ipad er takmarkað tæki heldur en hvað flash slæmur staðall.

    Ég kem aldrei til með að fá mér iPad meðan það styður ekki flash.

  10. Gravatar Icon 10 Þórður Laugardagur 20. febrúar 2010 kl. 18:49

    Sorglegt hvað flash forritarinn Daníel veit lítið um holurnar í flash. Adobe var til dæmis bara núna nýlega að laga villu sem krassar flash sem þeir hafa vitað af síðan 2008.

  11. Gravatar Icon 11 i hate apple Mánudagur 22. febrúar 2010 kl. 12:17

    Með öðrum orðum….. Flash er of flott og öflugt fyrir iPad, iPad ræður ekki við Flash og þess vegna ætlum við að banna það :grin:

  12. Gravatar Icon 12 Karlg Mánudagur 22. febrúar 2010 kl. 17:49

    Það væri nú gaman ef Adobe myndu hætta að uppfæra Photoshop, Illustrator fyrir makkann og tilkynna að næstu 2-3 stóru CS uppfærslur yrðu win only.

    Steve væri fljótur að kyngja hrokanum / stoltinu þá.

  13. Gravatar Icon 13 Bjöggi Mánudagur 22. febrúar 2010 kl. 17:58
  14. Gravatar Icon 14 Atli Mánudagur 22. febrúar 2010 kl. 22:27

    Daníel, ég veit það eru færri með Silverlight heldur en Flash… en síðasta sumar var sagt að það væru yfir 300.000.000 uppsetningar af silverlight. Ég vil svosem ekki fara í pissukepni með Silverlight vs. Flash, en bæði þessi kerfa hafa eflaust sína kosti og galla.

    Gaman að sjá t.d. afköstin af ólympíuleikjum 2008 :-)

    http://team.silverlight.net/announcement/nbc-olympics-wins-an-emmy-with-silverlight/

    Silverlight er náttúrulega nýrri tækni og að sjálfsögðu ekkert nema eðlilegra að færri séu með hana uppsetta :-)

  15. Gravatar Icon 15 Billi Hlyns Þriðjudagur 23. febrúar 2010 kl. 11:43

    Flottur Daníel. Flottur. hah

  16. Gravatar Icon 16 Murdoch Þriðjudagur 23. febrúar 2010 kl. 19:35

    Flash er drasl og ég vona að Jobs nái að myrða það.

  17. Gravatar Icon 17 Kristján Miðvikudagur 24. febrúar 2010 kl. 01:21

    Hvernig stendur á því að menn eru samt heitir fyrir iPad?
    Er ég svo frekur að ætlast til þess að Apple komi til móts við þarfir markaðarins gagnvart þeim sem hefðu frekar viljað 10″ apple tölvu frekar en PC vélar? Ég persónulega er ekki hrifinn af því að kaupa 10″ iPod Touch!
    keyrir Ipad í alvörunni bara eitt forrit í einu? og einungis þau sem hægt er að versla í gegnum Apple store?

  18. Gravatar Icon 18 HT Fimmtudagur 25. febrúar 2010 kl. 16:15

    Auðvitað er þetta rugl, og fyrst og fremst vegna þess að örgjörvinn í iPad ræður einfaldlega ekki við Flash án Apple þurfi að viðurkenna það.

    Fólk virðist halda að HTML5 eigi eftir að leysa öll vandamál. Það að Flash forritarar eigi til að fara ‘overboard’ í effectum þýðir bara að það sama eigi eftir að gerast í HTML5.

  19. Gravatar Icon 19 Kerlingin Mánudagur 29. mars 2010 kl. 08:53

    Vonandi virkar þetta þannig að flash fasist fyrr út, það er óþolandi hvað það notar mikið cpu

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!