A.m.k. tveir notendur Maclantic hafa lent í því að hafa pantað sér Amazon Kindle og hefur tækið verið flokkað sem upptökutæki við komu til landsins að mati Tollstjóra.
Tollflokkur af þessari tegund þýðir 25% vörugjöld + 7,5% tollur auk 25,5% virðisaukaskatts.
Hvaða flokk þetta tæki heyrir undir er óvíst, en nokkuð ljóst er að það er ekki upptökutæki heldur lestæki, álíka og bækur.
Við hvetjum alla sem hafa keypt sér Amazon Kindle að skoða eftirfarandi þráð og finna ásættanlega lausn í málinu:





The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
þetta er þroskaheft land það er smurt á allt skiftir eingu hvað það er
Þekki einn sem keipti sér einmitt upptökutæki og það var flokkað sem MP3 spilari bara vegna þess að tækið getur tekið upp MP3 hlóð. Mjög svo asnarlegt.
Já, þetta er með ólíkindum hvernig þessir hlutir virðast alltaf lenda í röngum flokkum hjá þessu liði hjá tollinum. Er þetta bara vanþekking eða er verið að stýra neyslunni. Maður spyr sig.
Þekki einmitt ótrúlega marga sem eiga svona græju og hafa sleppt því að segja tollinum frá þeim!!!
Skrítið!?!?!
Ég hef flutt margt inn á seinustu árum og stundum flutti ég oft inn sama hlutinn og vita menn það fór bara eftir því hver var að tolla hvert græjunar lentu í tollaflokki.
Svona heimskulega flokkun er ávísun á smygl…. og þá fær skattman ekkert !
ef ég kaupi svona tæki mun ég ekki taka sjensinn á að lenda í dumbass tollara. Ég hef ekki efni á kindle eins og er, og engan veginn ef verðið hækkar um rúmlega helming við það að rúlla gegnum rétt hlið í leifstöð.
Ég heyrði að þetta væri tollað sem myndbandsupptökutæki, ef svo er þá endilega fá aðstoð frá tollstjóra á að benda sér á það hvar myndbandsupptökubúnaðinn er og fá smá kennslu, ef hann getur það ekki og hann er vissulega ekki til staðar þá verður hann að borga ykkur til baka.