Í dag hefur Apple kynnt byltingarkennda smátölvu með fjölsnertiskjá eins og notendur þekkja af iPhone og iPod touch.
Líkja má iPad við stóran iPhone eða iPod touch, en með mun fleiri möguleika. Hann er aðeins 1,27cm þykkur, 680 grömm og með 9,7 tommu IPS skjá.
Örgjörvinn í iPad er frá Apple og ber nafnið „A4“. iPad verður með 1GHz A4 örgjörva, Bluetooth 2.1, Wi-Fi 802.11n, 10 klst rafhlöðuendingu og endist í 1 mánuð í hvíld (sleep). Geymslupláss verður í þremur útgáfum; með 16GB, 32GB og 64GB flash-minni.
Einnig verður iPad fáanlegt með 3G neti, en fyrir það er greitt aukalega ($130 í USA). Tækið verður opið fyrir hvaða 3G þjónustuaðila sem er.
Verð á iPad í USA (án vsk.) er eftirfarandi:
Gert er ráð fyrir að iPad verði fáanlegur um allan heim innan við 60 daga, en ef við þekkjum Apple rétt þá skal taka það með fyrirvara.
Nánari upplýsingar um tækið verður fáanlegt bráðlega á www.apple.com/ipad.






(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.
Þá er það spennandi.. kemst maður í App store í iPad á íslandi án krókaleiða ?
Djöfull er ég hrifinn af þessari græju samt!
jæja ég sem ætlaði ekkert að fá mér meira af Apple næstu mánuði .
En nuna verður það þessi græja .
.-) .-) .-) .-) .-)
Er ekki að sjá hve spennandi það er að kaupa browser fyrir 60þús án vsk…. ?
Hefði heillast hefði þetta verið einhver “fundargræja” þ.e. maður gæti tekið upp fundi, tíma og annað slíkt… jafnvel að maður gæti glósað auðveldlega… þ.e. skrifað á “blað” á þessu… er það kannski hægt?
Jói: Það verður hægt að glósa með þessu, bæði með fingrahreyfingum, snertipennum og lyklaborði sem birtist á skjánum, sem er á stærð við venjuleg fartölvulyklaborð.
Hvað á maður að gera við þetta. Stór ipod eða stór iPhone.
Veit ekki laveg með þetta lookar vel allt það en samt notagildi ekkert ferð ekkert með þetta með þér neitt
Correct me if i am wrong
Mér finnst vanta myndavél á þetta svona þanning maðir gæti verið a skype eða eitthvað svoleiðis
… og gps og þá er þetta orðið svaðalegt tæki í jeppann
Hef enga trú á þessu – enn einn dótakassinn fyrir þennann litla sértrúarsöfnuð.
Jahá.
Þetta er nú ekki inspiring verð ég að segja, ofvaxinn ipod touch.
Geymsluplássið er langt frá því að vera nægilegt,Apple örri ? come on !
verðið er út í hött. Það verða bara öfgasinnaðir Apple trúboðar sem fá sér þetta dót. Það þarf ansi mikið meira að koma til svo ég fjárfesti í þessu. Fyrir þetta verð myndi ég frekar kaupa ódýra fartölvu EVERY time sem getur gert mun meira
Já, þetta hentar ekki öllum … enda hvað gerir það?
Ég sé enga ástæðu til að eiga 2-300.000 kr. fartölvu til að brása netið og tjekka meil. Miklu frekar fengi ég mér svona græju, eina handa mér og eina handa kjellingunni. Þessi græja gerir allt sem ég þarf og meira til.
Og af hverju má ekki vera til dót? Þetta kostar eins og eitt dekk undir breyttan jeppa … og hvað myndi maður gera við eitt dekk?
þetta kostar 60-109.000 í USA
sem þýðir að það mun kosta 140-240.000 hérna heima
Ergo ég myndi frekar bæta við smá og fá mér Macbook eða jafnvel kannski nýju lenovo vélina.
Sem verður með snertiskjá líka en hægt að taka skjáinn úr vélinni og þá keyrir hann linux en windows 7 þegar skjárinn er í fartölvunni. http://www.engadget.com/2010/01/04/lenovo-ideapad-u1-hybrid-laptop-by-day-unhinged-tablet-by-nigh/
Það er sniðug græja og 100 sinnum meira innovative en þetta frá Apple
Jóhann, ekki 140 og uppúr m.v. gengi í dag. Það stórefast ég um.
Bjöggi, Miðað við tolla, 25.5% virðisauka og álagningu söluaðila þá er 140 ekki fjarri lagi held ég. Þetta fer pottþétt í sama tollflokk og ipod enda í raun ofvaxinn ipod touch á ferð en ekki tölva hvað varðar tollflokkun.
Ódýrasti iPod touch hér heima kostar 52.900. en kostar 199 dollara í USA sem gera ca 266kr per dollar
næst er 79900 en 299 í USA sem gera ca 267kr per dollar
dýrasti Ipod kostar 104900 hér en 399 dollara í USA sem gera ca 262kr
Meðaltal á verði dollars í krónum þegar iPod touch er annars vegar er því 265kr íslenskar.
ódýrasta iPad mun kosta 499 í USA
Ef við notum meðaltalið sem fundið var hér að ofan (sem er ekki óraunhæft að ætla) þá eru það svo mikið sem 132.000 sem minnsti iPad mun kosta
sá dýrasti væri á 220.000 skv sama stuðli.
Þetta verð er ekki fjarri lagi held ég nema eitthvað breytist í tollun og álagningu sem ég á ekki von á.
Best að bæta því við að mig langar samt alveg í svona
en miðað við verðið sem ég býst við þá er það ekki þess virði
Sæll Jóhann, þetta verður ekki flokkað sem iPod enda um tölvu að ræða.
Græjan frá Lenovo er miklu sniðugari… væri óskandi að það væri hægt að fá almennilegt stýrikerfi á það. Hvað ætli það sé langt í að apple komi með sambærilegt concept.
M.v. að iPad eigi að keyra á sama stýrikerfi og iPhone þá er lyklaborðið hundleiðinlegt þegar svara á e-mailum og öðru, hefur enginn spáð í því?
Ég vona að þú hafir rétt fyrir þér í því Bjöggi. Samt ekki alveg jafn viss og þú um að ríkið tolli það með þeim hætti enda er þetta að ég fæ best séð stækkuð útgáfa af iPod touch og ekkert í þessu sem ekki er í touch, skv því ætti að tolla touch sem tölvu og því ætti verðið á því að vera miklu lægra.
Þannig ég gleypi slíka tollun á þessu þegar ég sé það
Ekki USB
Ekki Multitask
Ekki Flash
Ekki Widescreen
Ekki Myndavél
Ekki Phone function
Drasl
Það kemur pottþétt myndavél í þetta í næstu útgáfum, ég ætla að bíða eftir því, einnig ætla ég að bíða eftri stærra minni, það ætti nú að vera pláss græjan er 3x stærri en ipod touch en með sama max minn ?? er ekki að fatta það. Spuring hvort einhverjir framleiðendur geri eitthvað sniðugt til að tengja við 30pinna tengið eins og t.d myndavél eða breytistkki yfir í usb þannig að maður geti notað usb lykla og svoleiðis. Best er að bíða og sjá hvering þessi græja þróast, ég á ipod touch þannig að ég þarf ekki svona í augnablikinu
víst er multitask var með svona þarna úti(usa) og var að hlusta á tónlist og á netinu á sama tíma og fór að skrifa mail þannig það er bara bull að það er ekki multitask