Apple uppfærir Boot Camp fyrir Windows 7

Þeir sem nota Windows af einhverju viti á Apple tölvunni sinni tóku líklegast eftir því þegar fyrirtækið lofaði opinberlegum stuðningi við Windows 7 fyrir lok 2009.

Það tók örlítið lengri tíma (augljóslega) því uppfærsla kom út í gær, 19. janúar 2010.

Uppfærslan, sem er útgáfa 3.1 af Boot Camp, inniheldur eftirfarandi atriði:

  1. Stuðningur við þráðlausa lyklaborðið og Magic Mouse
  2. Lagfæringar á snertifleti fartölva
  3. Innrauði móttakarinn slekkur á sér þegar hann er ekki í notkun (sparar rafmagn)

Þar að auki gaf Apple út fastbúnaðaruppfærslu fyrir ákveðnar gerðir af iMac og Mac Pro: skoða nánar hér.

Einnig komu nýir reklar út fyrir iMac 21,5″ og 27″: skoða nánar hér.

Og síðast en ekki síst kom út „Boot Camp Utility for Windows 7 Upgrade“, sem lagfærir villu sem átti sér stað við uppfærslu úr Vista í 7.

1 svar við “Apple uppfærir Boot Camp fyrir Windows 7”


  1. Gravatar Icon 1 Tolli Fimmtudagur 21. janúar 2010 kl. 10:07

    Grúví. En væri ekki þjóðráð að bæta við flokki á spjallið sem gæti hýst umræður um t.d. BootCamp? Finnst það hvorki passa undir “Mac OS X” né aðra flokka sem eru til.

    Er sjálfur að nota BootCamp til að geta notað WinXP í vinnunni á MacBook Pro. Eftir Snow Leopard og BC uppfærslu (sem kom með nýja rekla fyrir hljóðkortið) versnuðu hljómgæðin til muna (a.m.k. í headphones) – einhver lent í svipuðu? Virkar fínt í Mac OS (=> ekki kortið eða headphonearnir) og einnig allt í góðu með hljóð í WinXP ef ég nota USB hljóðkort (=> ekki hægt að kenna Windows alfarið um!)

    Tolli

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!