
Maclantic óskar lesendum og notendum sínum gleðilegra jóla og þakkar allar góðu, skemmtilegu, pólítísku og áhugaverðu umræður sem skapast hafa á spjallvefnum á þessu ári.
Eplaárið í ár hefur verið nokkuð gott með tilkomu iPhone 3GS, endurhannaðri og öflugari MacBook, glæsilegum nýjum iMökkum ásamt mörgu fleira (hvar er nýja Apple TV og iTablet?).
Vonandi fá sem flestir harða Apple-pakka í jólagjöf í ár.
Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar!
Jólakveðjur,
Björgvin Björgvinsson
Stofnandi Maclantic.is




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Gleðileg jól
Gleðileg jól!
Jebb, fékk sko harðan Apple pakka í ár, fékk MacBook 2.26Ghz
Geðveik vél í alla staði.
Gleðileg Jól!!!!
Gissur: til hamingju
eru fleiri en ég að lenda í vandræðum með login á maclantic.is spjallið ?
fæ bara “Smellið hér til að reyna aftur
Smellið hér til að fara til baka á yfirlit”
?
Já gleðileg jól.
En hvar er þessi kirkja á myndinni?
@Murdoch:
Í heimabæ kærustunnar í S-Þýskalandi