Leikjaiðnaður á Íslandi er svo sannarlega kominn á flug, en tölvuleikjaframleiðandinn Gogogic sendi nýverið frá sér hinn léttgeggjaða fjölspilunarleik Soft Freak Fiesta fyrir iPhone og iPod Touch. Leikurinn hefur þegar fengið frábærar viðtökur eins og sjá má á heimasíðu hans.
Í leiknum stjórna leikmenn þremur krúttlegum kvikindum er kallast Soft Freaks. Leikurinn er lotubundinn og er takmark hans að ýta andstæðingum sínum fram af klettum, ofan í sýru, útí sjó, brenna þá, stinga eða kremja. Leikmenn tengjast hverjum sem er í heiminum í gegn um WiFi, Bluetooth eða 3G. Búast má við uppfærslu á leiknum mjög bráðlega, en hún mun innihalda ný kvikindi, nýtt borð, lagfæringar og viðbætur.
Soft Freak Fiesta er annar leikur Gogogic sem komið hefur út á App Store, en fyrr á árinu gaf fyrirtækið út hinn rómaða Symbol6 sem var valinn einn af 15 áhugaverðustu þrautaleikjum á App Store auk þess sem hann var tilnefndur til Nordic Game verðlaunanna 2009. Búast má við nýjum iPhone leik frá Gogogic á næsta ári.
Soft Freak Fiesta kostar tímabundið aðeins $0.99. Náðu í Soft Freak Fista hér.




(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.
Soft Freak Fiesta er nú New and Noteworthy í US App Store. Vei, vei!
Virkilega vel heppnaður leikur. Einn sá skemmtilegasti sem ég á, hef spilað hann á næstum hverjum degi síðan ég keypti hann.