Elko hefur sölu á iPhone

Screen shot 2009-11-14 at 22.02.23

Elko hefur hafið innflutning á iPhone samkvæmt heimasíðu þeirra. Samkvæmt heimasíðu Apple er þetta ekki gert með fúslegu leyfi Apple en þó skal taka fram að það er ekki ólöglegt.

Símarnir eru ólæstir og því hægt að nota þá með hvaða SIM-korti sem er.

Eins og stendur er hægt að panta eina gerð; iPhone 3GS með 16GB geymsluplássi. Verðið á gripnum er 159.995 krónur með vsk. og lendir 23. nóvember.

Hægt er að kaupa símann ódýrari á www.iphone.is, en þar er traustur aðili á ferð sem hefur selt iPhone á Íslandi með frábæra þjónustu að sögn kaupenda. Verðið er 149.995 kr. á 16GB og 179.916 kr. fyrir 32GB m.v. gengisskráningu 13. nóvember 2009.

Heimild

25 svör við “Elko hefur sölu á iPhone”


  1. Gravatar Icon 1 Arnór P Laugardagur 14. nóvember 2009 kl. 23:45

    Loksins Loksins

  2. Gravatar Icon 2 Gudjon Sunnudagur 15. nóvember 2009 kl. 01:24

    Hvar á heimasíðu Apple kemur fram að þetta sé ekki með fúslegu leyfi þeirra?

    Það er bara verst að þurfa að standa í að kaupa símann á þennan hátt.

  3. Gravatar Icon 3 Sigurður Stefán Flygenring Sunnudagur 15. nóvember 2009 kl. 01:28

    @Gudjon

    Íslenski fáninn væri þá væntanlega hérna:
    http://support.apple.com/kb/HT1937

  4. Gravatar Icon 4 Hilmar Sunnudagur 15. nóvember 2009 kl. 10:22

    Svo eru það ódýru makkarnir á buy.is ;)

    Þetta er að verða gaman

  5. Gravatar Icon 5 emmi Sunnudagur 15. nóvember 2009 kl. 14:00

    Kosturinn við Elko er að sjálfsögðu 2 ár í ábyrgð.

  6. Gravatar Icon 6 Styrmir Sunnudagur 15. nóvember 2009 kl. 14:07

    Nýi imacinn er 40.000 kr ódýrai hjá buy.is en hjá apple (3,066 ghz týpan) og er með 2ja ára abyrgð. Að öllu óbreyttu hugsa ég að ég nýti mér það frekar.

    http://buy.is/category.php?id_category=51

  7. Gravatar Icon 7 Helgi Hrafn Halldórsson Sunnudagur 15. nóvember 2009 kl. 14:47

    Sammála Emma. Aukalega 10.000 er þess virði að fá auka ár í ábyrgð.

  8. Gravatar Icon 8 belgurinn Sunnudagur 15. nóvember 2009 kl. 18:42

    Návæmlega það sem ég var að spá. Í raun ætti iphone.is líka að veita 2ja ára ábyrgð þar sem það er í lögum að öll raftæki skuli bera 2ja ára ábyrgð.

  9. Gravatar Icon 9 Sigurður Sunnudagur 15. nóvember 2009 kl. 20:01

    Það er verið að vinna í að gera 2ja ára ábyrgð mögulega. Samkeppni er að hinu góða ;-)

  10. Gravatar Icon 10 fritz Sunnudagur 15. nóvember 2009 kl. 20:40

    En hvernig er það núna ef maður kaupir símann í USA, er það vesen og er einhverjir ódýrir möguleikar á að opna Þá. kostar frá 199$ + tax ?

  11. Gravatar Icon 11 kiddi Sunnudagur 15. nóvember 2009 kl. 23:27

    woot keppti minn í noregi nýjan í búð iPhone 3GS með 16GB á 46 þúsund íslenskar djö okur verð hér fail

  12. Gravatar Icon 12 tgj Mánudagur 16. nóvember 2009 kl. 09:20

    Síminn sem þú keyptir í Noregi hefur væntanlega verið læstur. Þetta eru opnir símar sem útskýrir verðmuninn. Athugaðu hvað opnir símar kosta í Noregi.

  13. Gravatar Icon 13 Siggi G Þriðjudagur 17. nóvember 2009 kl. 12:24

    Það er samt geðbilun að kaupa sér síma á 160 þús. þótt þetta sé iPhone. Ef þú býrð í USA þá kostar iPhone 25 þús út í búð. Hvernig er hægt að réttlæta 135 þúsund króna álagningu?

  14. Gravatar Icon 14 Bjöggi Þriðjudagur 17. nóvember 2009 kl. 12:28

    Siggi:
    þú kaupir hann á 25 þúsund já. En svo verðurðu að borga $60+tax á mánuði í tvö ár.

    Kallarðu það ekki geðbilun? ;)

  15. Gravatar Icon 15 emmi Þriðjudagur 17. nóvember 2009 kl. 15:59

    Hehe, álagning já. Fyndið hvað sumir eru ekki ennþá að fatta hvað gengið er óhagstætt.

    Verð á ólæstum iPhone í EU:
    8gb iPhone 3G €499
    16gb iPhone 3GS €619
    32gb iPhone 3GS €719

    Inní þetta vantar svo flutningskostnað og virðisaukaskatt.

  16. Gravatar Icon 16 Víglundur Þriðjudagur 17. nóvember 2009 kl. 17:18

    iphone.is er að selja sína síma í dag á 156þúsund kr eins og gengið er…. hinnsvegar er ég með gott kynningartilboð á mínum símum á 144.990kr en er bara að biða eftir leyfi að selja á maclantic, er ekki alltaf sagt að samkeppni er af hinu góða :D

    Verðið hjá mér er með flutningskostnað og virðisauka.

  17. Gravatar Icon 17 Sigurður iphone.is Miðvikudagur 18. nóvember 2009 kl. 01:33

    Víglundur, þetta er rangt hjá þér, ég er að selja símann á 149.995 og veiti 2ja ára neytendaábyrgð. Kíktu bara á http://www.iPhone.is áður en þú setur svona fullyrðingu fram, ég hef 13 mánaða reynslu í að selja og þjónusta viðskiptavini. Ég hef ekki fengið eina kvörtun ennþá. Það skiptir líka máli að maður geti treyst seljandanum.

  18. Gravatar Icon 18 Eiður Þór Miðvikudagur 18. nóvember 2009 kl. 18:37

    Halló, þetta tengjist málinu eeeeekkki neitt (ég er ekki nógu gamall til þess að meiga hafa aðgang að spjallborðinu) en, er þetta ekki eitt af því hallærislegasta sem maður getur fundið?? : http://www.youtube.com/watch?v=TSAXEVXvNz8&feature=player_embedded (úr Microsoft store)

  19. Gravatar Icon 19 Víglundur Miðvikudagur 18. nóvember 2009 kl. 19:15

    Já sæll verð nú bara að segja að ég tók ekki eftir tilboðsdálkinum hjá þér, mín mistök.Var nú samt ekki að ýja að því að þú værir með lélega þjónustu, heldur bara að ég sé að selja símana ódýrara en þú.

  20. Gravatar Icon 20 Guðrún Bergmann Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl. 17:42

    Sælt verið fólkið.

    Mæli með að fólk versli iPhone hjá Sigurði, enda topp maður og topp þjónusta þar í boði.
    Hef sjálf ekki góða reynslu af Elkó.
    Þótt þeir bjóði tveggja ára ábyrgð, myndi ég ekki versla mér iPhone nema gegnum Sigurð.
    Ekki gleyma því gott fólk, Sigurður er búin að sjá til þess að flest okkar hafa fengið tækifæri að eignast iPhone með ábyrgð og góðri þjónustu, fyrir litla þóknun.

  21. Gravatar Icon 21 Garðar Föstudagur 20. nóvember 2009 kl. 01:36

    nææs @kiddi veistu um einhvern sem getur reddað læstum 3GS á í kringum 50 þús ?

  22. Gravatar Icon 22 Arnór Páll Mánudagur 23. nóvember 2009 kl. 23:56

    Ef maður kaupir sér IPhone 3Gs út í Noregi fyrir 50 þús er þá eitthvað mál að opna hann ? Veit það einhver?

  23. Gravatar Icon 23 Garðar Miðvikudagur 25. nóvember 2009 kl. 09:35

    ábyggilega ekkert svaka mál það er gert ráð fyrir gs í pownd forritinu allavega

  24. Gravatar Icon 24 Arnór P Miðvikudagur 25. nóvember 2009 kl. 17:14

    verð að spurja hvað er (gs í pownd forritinu ) :smile:

  25. Gravatar Icon 25 Arnór Páll Mánudagur 30. nóvember 2009 kl. 09:37

    Ef ég myndi kaupa mér IPhone gæti þá einhver opnað hann fyrir mig (Er á Akureyri)

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!