Dót og ekki dót, en það verður að segjast að við flestöll hérna á Maclantic bíðum spennt eftir nýju vörunum.
Þar sem mikið er spurt um þetta bæði hér á vefnum og í verslun IceMac þá er best að tilkynna ykkur að búist er við sendingu af nýju vörunum um miðjan nóvember – lok nóvember.
Hægt er að leggja inn pöntun á nýju tölvunum á IceMac.is.
Ef fólk er hins vegar að bíða eftir nýju „Magic Mouse“ músinni, og vill tryggja sér eintak úr fyrstu sendingum, þá er hægt að senda versluninni tölvupóst á verslun(hjá)icemac.is ásamt kennitölu og símanúmeri og er þá hringt í viðkomandi um leið og varan lendir!




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Er komið e-ð ca. verð á þetta?
var einmitt að fara að spurja um hið sama
Mun þessi nýja Magic Mouse virka á Windows ?
Myndi giska á 14.990 kr.
Mæli með að panta músina á Amazon 70usd = 10þ með vsk + einhver sendingakostnaður. Giska á að það verði nú komið á sama tíma og hjá Icemac og örugglega ódýrar.
Kemur ný sending af Snow Leopard líka með þessari sendingu eða meigum við eiga von á því eitthvað fyrr?
Er ennþá skortur af Snow Leopard?
Það er ekki hægt að fá sendar Apple vörur frá Amazon. Amazon er bara milliliður og vörurnar eru því sendar frá Apple og þeir senda ekki á milli markaðssvæða.
,,Það er ekki hægt að fá sendar Apple vörur frá Amazon. Amazon er bara milliliður og vörurnar eru því sendar frá Apple og þeir senda ekki á milli markaðssvæða.”
Það er nú bara víst hægt. Hvernig stendur þá á því að fólk fékk Snow Leopard sendann frá Amazon þegar hann var uppseldur hérlendis?
Himmifk – Hugbúnað, já.
Ég trúi því nú varla að maður þurfi að skrifa sig á lista til að kaupa tölvumús. Það er nú einum of langt gengið í haftastefnu Apple. Pantiði bara nóg af þessu dóti!!
Veit einhver hvort það sé búist við iLife og iWork ‘10 á næstunni?