
Auk nýs iMac kynnti Apple í dag endurhannaða MacBook. Tölvan er hvít eins og áður með nýrri polyarbonate unibody hönnun, LED baklýstum skjá, 7 tíma batterílífi og gler trackpad eins og á MacBook Pro. Plastið í tölvunni á að hrinda frá sér óhreinindum en einnig er nýtt undirlag á henni sem á að koma í veg fyrir að hún renni til.

Í vélinni er 2.26 GHz Core 2 Duo örgjörvi, 2GB í vinnsluminni (hægt að auka í 4GB), NVIDIA 9400M skjástýring, 250GB harður diskur og SuperDrive. Mun hún fást fyrir $999.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Mér finnst alveg möst að taka það fram að þetta leysir vonandi top case gallann
.
djöfull er þetta ljótttt og feittt
999$ er ekki slæmt verð
$999 eru vonbrigði. Bjóst við 899 í hið mesta.
ertu ekki að grínast..
999 er gjafaverð fyrir svona góða tölvu
ekkert ._ .
firewire ~_~
Mig langar að vekja athygli Apple kaupenda og notenda á svari talsmanns neytenda um ábyrgð á rafhlöðum í símum og tölvum (hér er þá átt við rafhlöður í iPod tónhlöðum og Apple ferðavélum), en talsmaður segir sem svo:
„rafhlöður eru ekki undanskildar í lögum um neytendakaup og er ekki vitað um úrlausnir sem ganga í aðra átt og því gildir almennur 2ja ára kvörtunarfrestur væntanlega um rafhlöður í tækjum eins og um tækin sjálf. Lögin eru ófrávíkjanleg.“
Sjá: http://www.talsmadur.is/Pages/64?#d3c028d1-ba50-49df-8686-995043e2f832
Þetta í ljósi þeirrar (ólöglegu) takmörkun á ábyrgð sem Apple á Íslandi hefur borið fyrir sig í gegnum tíðina á rafhlöðum.
Þetta á að sjálfsögðu einnig við um sambærileg lögbrot annarra tölvusala.
Þannig að bili rafhlaðan, ekki vera óhrædd við að standa fast á ykkar og heimta ábót.
- Neytandinn
Nice, þetta vissi ég ekki. thumbs up neytandinn