
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá AppleInsider er talið að nýr iMac verði kynntur fyrir jólin með SD-kortarauf, jafnvel fjögurra-kjarna örgjörva og endurhannaðri mús.
Þar að auki er talið að MacBook verði uppfærð með lægsta verðmiða í sögu fyrirtækisins.
Gæta skal að um orðróm er að ræða, en við vonum þó að hann sé réttur að einhverju leyti!
Heimildir:
Next-Generation iMac With SD Slot, Quad-Core, Possible Xeon? New Mouse and Remote in Pipeline?
MacBook Update to Be Released Alongside New iMacs?
Next-Generation iMacs Already in Production?




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Hmm, „samkvæmt áreiðanlegum heimildum…” og svo „engar staðfestingar eru til staðar”. Þetta þykir mér asnalegt.
Einnig: Af hverju get ég ekki loggað mig út úr WordPress? Ég vil ekkert heita mínu fulla nafni, í hvert sinn sem ég logga mig út og reloada þessari síðu loggast ég aftur inn!
Ó, kannski er þetta Facebook, en ég er ekki loggaður inni þar! Samt kemur þetta ótrúlega leiðinlega “Welcome Egill.” hvíta box uppi í horninu, og það er ekki hægt að logga sig út þar með því að ýta á “Log out of Facebook”. Ég vil ekkert endilega að það komi direct link á Facebook síðuna mína.
Vinsamlegast taktu það í burtu Bjöggi.
Egill: ég get ekki breytt kommentunum þínum þar sem þau eru tengd Facebook – ég get bara eytt þeim út í heild sinni.
Þetta lá nú í loftinu þegar þeir breyttu ál MacBook í 13″MacBookPro og komu ekki með nýja MB á móti. Það var nú líka líkt Apple að bíða þangað til eftir að skólarnir byrja með að koma með ódýrari tölvu (ekki góð strategia ef þú spyrð mig).
Annars finnst mér þetta vera frekar seint. Markaðurinn hefur fyrir lööngu kallað á ódýrari MB.
Ég ætla ekki að rengja aðferð þeirra þar sem hún hefur svínvirkað hingað til…
Hins vegar er ég sammála með ódýrari MacBook, en hvort það hefði verið sniðugra að koma með hana fyrir eða eftir skólaseason… veit ekki.
Ég held að málið er að þeir verði að halda stöðugri sölu næstu mánuði og þeir geta það með því að kynna eitthvað nýtt og ódýrari rétt fyrir jólin.
Ég spái:
iMac:
Stærri skjár, LED
Betra skjákort
Kraftmeiri örgjörva
Blu-ray spilara
Stærri HD
Útlitsbreytingar í stíl við Macbook Pro
Ál lyklaborð með svörtum tökkum
Ál mighty mouse
Ál fjarstýring
Um að gera að vera bjartsýnn
.
Vonandi, vonandi
Það er hægt að myndina sem fylgir með þessari frétt til að calibrate-a skjáinn minn.