
Íslenska leikjafyrirtækið Dexoris kynnir nú með stolti Peter und Vlad, sinn fyrsta leik fyrir iPhone og iPod touch. Leikurinn verður fáanlegur í Apple App Store föstudaginn 25. september og er spennandi ævintýraleikur fyrir alla fjölskylduna, sem fjallar um Sedov-bræðurna, Pétur og Valda, og baráttu þeirra við stjórnlausa veðurvél.
Valdi er uppfinningamaður sem sumir kalla brjálaðan en aðrir uppátækjasaman. Nýjasta framlag Valda til sveitastarfanna á Sedov býlinu er framúrstefnuleg veðurvél. Eftir áratugalangar rannsóknir áttaði hann sig á að veðurvélin gat gengið fyrir kindaull, en í öllum æsingnum gleymdi hann að útfæra rofa til þess að slökkva á vélinni! Að sjálfsögðu fer allt úr böndunum þegar vélin er sett í gang og leikmenn verða því að hjálpa Pétri við að smala kindum sínum inn í fjárhúsið áður en veðurvélin notar orkuna úr ullinni til þess að valda umhverfisslysi.
Fyrirtækið Dexoris er ungt að aldri en starfsmenn þess búa yfir mikilli reynslu á sviði hugbúnaðargerðar og hönnunar. Þeir hafa fjölbreytta og ólíka menntun en eru sameinaðir í að gera vandaða leiki fyrir alla aldurshópa. Við sáum mikla möguleika í iPhone, því síminn er þvílíkt undratól og með elju og útsjónarsemi teljum við að lítil leikjafyrirtæki geti keppt við stóru risana um athygli viðskiptavina í sívaxandi netverslun Apple.
Næstkomandi föstudag verða stofnuð samtök íslenskra leikjaframleiðenda (www.igi.is) sem er vitnisburður þess að framtíðin er björt á Íslandi fyrir þennan vaxandi iðnað. Við finnum engu að síður fyrir smæð Íslands þegar við reynum að vekja á okkur athygli í stórum leikjaheiminum. Því leitum við til Íslendinga, nær og fær, og vonum að við getum staðið saman í því að vekja athygli á ungum og upprennandi leikjafyrirtækjum. Nokkur góð orð á Twitter, Facebook eða öðrum samfélagsmiðlum geta gert gæfumuninn.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um Pétur og Valda á peter-und-vlad.com.
Auglýsingaefni: http://peter-und-vlad.com/pr/peter_und_vlad_press_kit.zip
Heimsækið dexoris.com og fylgist með Dexoris á Twitter og Facebook.




(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.
Snillingar, frábær hugmynd og feitt thumbs up fyrir framtakið!
Frábært og gott að sjá ísland koma inn á leiksviðið. Vona að þetta gangi vel.
Þetta verður þá þriðji íslenski iPhone leikurinn og það eru fleiri á leiðinni. Ísland selur einusinni ekki iPhone! hah.
Það er nú hægt að spila þá á iPod Touch
Noh, það er ekkert annað.
Svo er líka komin ný frétt handa Georgi!
Það eru 7 íslenskir iphone leikir til sölu í dag, ekki 3.
Nefnið þá!