
Eins og búist var við, hefur Vodafone brugðist við nýju pökkunum frá Símanum með uppfærðum áskriftarpökkum á sama verði og áður (Síminn hækkaði sínar áskriftarleiðir um ca. 3 til 7,5%).
Allir pakkar eru með sama hraða, eða 12Mbit og með eftirfarandi gagnamagni:
- 10GB á 4.190 kr. / 3.690 kr. (Vodafone Gull)
- 30GB á 5.190 kr. / 4.690 kr. (Vodafone Gull)
- 70GB á 6.190 kr. / 5.690 kr. (Vodafone Gull)
- 120GB á 7.390 kr. / 6.890 kr. (Vodafone Gull)
Áskriftarpakkarnir frá Vodafone eru því mun hagstæðari en hjá Símanum fyrir þá sem nýta sér Vodafone Gull.
Loks orðið bjartara yfir netheimi litlu eyjunnar í miðju Atlantshafi og geri ég ekki ráð fyrir öðru en að Maclantic-verjar séu hæstánægðir með þessar breytingar.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Frábært, er hjá vodafone og var með 40GB limit núna 70GB, það ætti að duga mér oftast.
Júhú… koma svo, hin fyrirtækin!
sweet
þá þarf maður ekkert að færa sig fer bara í 120 GB
Bara vesen að búa á Djúpavogi núna, haha!
(Athugasemd til Bjögga; ef maður gleymir að skrifa í “Póstfang”-retinni fær maður villu-meldingu. Og þegar maður fer til baka hverfur textinn sem maður var búinn að skrifa. Það væri fínt ef textinn sem maður er búinn að skrifa haldist inni svo maður þurfi ekki að skrifa hann aftur).
Kv.
Bjarni
BU HU !!!
Segja ekkert um ljósið
Nema það sé mestihraði og 120 gb ?
Gildir líka um ljósið, sjá gjaldskrártöfluna á Vodafone vefnum!
Síminn leiðir eins og oft áður breytingar á markaðnum sem er hið besta mál fyrir alla viðskiptavini. Þetta er nýjar leiðir hjá Símanum með meira hraða og inniföldu gagnamagni en áður voru í boði og því erfitt bera saman verðlega. Í langflestum tilvikum mætti þó tala um verðlækkun. Síminn líka býður mesta hraða í ADSL eða allt að 16 Mbit. Allt tal um mun hagstæðara verð hjá Vodafone er orðum aukið auk þess sem það er skilyrði að vera með allt hjá Vodafone sem hentar ekki mörgum hópum.
Góður pistill frá markaðsdeild Símans
Kveðja úr Skútuvoginum!
Ég er með GSM borgaðann af vinnunni, sem er hjá símanum.
Það er hagstæðara fyrir mig að vera með Internet hjá Símanum líka. Ég fæ ekki Gull verð hjá Vodafone nema að vera með GSM skráðan þar.
Þá eru pakkarnir hjá Símanum betri, eða er það ekki? Endilega leiðréttið ef það er ekki svo….
Það fyndna er að í dag er síminn frjálst fyrirtæki (undir gjaldþrota Exista reyndar), en Vodafone er orðið ríkisfyrirtæki! Fáranlegt land sem við búum í….
1 GB pakkinn er 200 kr. dýrari hjá Vodafone (án Gull), en hraðinn er 12 Mbit í stað 1 Mbit hjá Símanum.
10 GB pakkinn er 200 kr. dýrari hjá Vodafone (án Gull), en hraðinn er 12 Mbit í stað 2 Mbit hjá Símanum.
70 GB pakkinn er 200 kr. dýrari hjá Vodafone (án Gull) en 60 GB pakkinn hjá Símanum. 12 Mbit hraði hjá Vodafone í stað 8 Mbit hjá Símanum.
Stærsti pakkinn er svo 200 kr. dýrari hjá Vodafone (án Gull).
Vodafone er svo með 30 GB pakka sem er ekki í boði hjá SeeMee.
Ég held að hraðinn í mörgum þessara tilfella sé ekki farinn að skipta máli, þ.e 8 vs 12 mb.
Raunhraði virðist alltaf vera mun minni sama hvaða blessuðu tengingu maður er með
Var ekki síminn fyrstur að breyta þessu?
hei bjöggi var að spá , það er eitthvað að , næ ekki að tengja iphone við itunes , er búinn að eiga hann í 2 ár og þetta er í fyrsta skipti sem þetta gerist , og itunes vill að ég geri þetta sem er á screeninu ,, , er það í lagi að gera þetta ?
[img]http://i289.photobucket.com/albums/ll230/hilli32/untitledasdas.jpg[\img]