Nýir iPodar 9. september

rock and roll

Apple hefur sent út boðskort til fjölmiðla um kynningu sem verður haldin þann 9. september kl. 10:00 í San Francisco (kl. 17:00 að íslenskum staðartíma).

Talið er að nýr iPod nano og touch verði kynntir með innbyggðri myndavél. Þar að auki er talað um að jarðarför iPod classic (myndin gefur það líka til kynna) verði þann sama dag þar sem iPod touch verði fáanlegur í allavega 64GB (flash) stærð.

Fylgist með!

4 svör við “Nýir iPodar 9. september”


  1. Gravatar Icon 1 Kristófer Kristófersson Mánudagur 31. ágúst 2009 kl. 20:45

    Ætli það komi enginn nýr kostur í stað iPod classic, mér finnst 64GB Touch ekkert spennandi og jafnvel ekki nægilegt geymslupláss fyrir suma.

  2. Gravatar Icon 2 Kolbeinnk Þriðjudagur 1. september 2009 kl. 00:23

    Ipod classic á stutt eftir held ég en afhverju segir greinarhöfundur að myndin gefi það til kynna? Ég get ekki betur séð en að manneskjan haldi á ipod classic

  3. Gravatar Icon 3 Kári Þriðjudagur 1. september 2009 kl. 00:41

    iPod Classic á klárlega stutt eftir, en það væru mistök af mínu viti að hætta með hann núna fyrst Touch er ekki kominn hærra en 64GB. Bróðir minn er t.d. med 120GB Classic og hefur aldrei verið ánægðari, segist nota u.þ.b 100GB. Classic getur heldur ekki verið mjög dýr í framleiðslu þar sem harðir diskar halda áfram að hríðfalla í verði

  4. Gravatar Icon 4 Atli Þór Þriðjudagur 1. september 2009 kl. 19:15

    Þetta er það sem ég elska við byrjun septembers, nýjir ipodar :grin:

    …En ég kaupi þá samt aldrei, mjög sáttur (í bili) með minn ipod nano (fatty) 8GB. Bara gaman að skoða hvað Apple menn eru að gera þessa dagana.

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!