Síminn hækkar gagnamagn úr 40GB í 120GB

Í dag hefur Síminn loks brugðist við eftirspurn notenda með því að bjóða viðskiptavinum sínum upp á betri áskriftarpakka en áður.

Frá og með deginum í dag er hægt að fá eftirfarandi áskriftarleiðir hjá Símanum:

  1. 8Mbit með 60GB gagnamagni á 5.990 kr. (áður 40GB og 6.190 kr.)
  2. 16Mbit með 120GB gagnamagni á 7.190 kr. (áður 12Mbit, 40GB og 6.690 kr.)
  3. 30Mbit (ljósleiðari) með 120GB gagnamagni á 7.990 kr.

Vonandi bregðast aðrar internetþjónustur við á Íslandi á næstunni. Maður gerir allavega ekki ráð fyrir öðru.

Verðskrá Símans

14 svör við “Síminn hækkar gagnamagn úr 40GB í 120GB”


  1. Gravatar Icon 1 Facebook User Fimmtudagur 27. ágúst 2009 kl. 20:22

    Þetta er ein besta frétt sem ég hef séð í íslenskum netheimi síðastliðinn 5 ár.. eða þar til ég fékk mér ljósleiðara á sínum tíma hjá skýrr með ótakmörkuðu niðurhali..

  2. Gravatar Icon 2 Kristófer Kristófersson Fimmtudagur 27. ágúst 2009 kl. 22:07

    Ánægður með símann, pakkarnir hjá Vodafone eru bara hlægilegir miðað við að það sé árið 2009. Mun pottþétt skipta ef ekkert gerist í froskalandi.

  3. Gravatar Icon 3 Kjartanh Fimmtudagur 27. ágúst 2009 kl. 22:18

    Ætli þetta takmarkist við hverfi þ.e að símstöðvar í hinum og þessum hverfum hafi hreinlega ekki flutningsgetu í íbúðarhúsin?

  4. Gravatar Icon 4 Baldur Fimmtudagur 27. ágúst 2009 kl. 22:46

    Ég hélt að þeir gætu ekki mælt gagnamagnið á ljósleiðaranum?

  5. Gravatar Icon 5 Maggi Freyr Fimmtudagur 27. ágúst 2009 kl. 22:57

    Ég hélt að þetta yrði það síðasta sem myndi gerast hjá símanum, klapp klapp

  6. Gravatar Icon 6 Pixx Fimmtudagur 27. ágúst 2009 kl. 23:13

    Vá… þvílíkur léttir… Eftir að 4GB limit’ið var sett á hefur netið hjá mér verið nánast ónothæft!!! Með 4 tölvur á heimili og verið að fá viðvörunar póst frá símanum 2-3 í viku!!! Mikið var að eitthvað var gert af viti :)

  7. Gravatar Icon 7 Pixx Fimmtudagur 27. ágúst 2009 kl. 23:14

    Átti að vera 40GB limit’ið :oops:

  8. Gravatar Icon 8 Isak Johannsson Föstudagur 28. ágúst 2009 kl. 12:17


    Maður vonar það að hin símafyrirtækin hækki gagngamagn.

    En nú segja þeir allt að.
    En er maður ekki að fá staight 30 mb á ljósi ?

    Ekkert neitt allt að ?

  9. Gravatar Icon 9 Fannar Föstudagur 28. ágúst 2009 kl. 15:49

    Allt að er nú bara til að koma í veg fyrir að þú getir kvartað ef þú færð ekki 100% 30Mbit. Og svo ertu örugglega ekki að fá þennan hraða þegar þú sækir síður erlendis.

    Síminn er samt ennþá miklu dýrari. 7.990 fyrir 30Mbit meðan Vodafone Gull 50Mbit er á 4.190! Ég vil samt sjá allavega 150-180GB gagnamagn hjá Vodafone og enga hækkun á verði!

  10. Gravatar Icon 10 Daníel Sunnudagur 30. ágúst 2009 kl. 09:47

    Ég er á því að það sé dýrara að vera hjá Vodafone en símanum, ef þú ferð framyfir gagnamagn allavegna. Reyndar er ljósið hjá þeim geggjað, en ekki í boði á mörgum stöðum, t.d. ekki hjá mér :(
    Samkvæmt heimasíðu Vodafone kostar í Vodafone Gulli:

    Ofurnetið
    Alltaf mesti hraði.
    40 GB erlent gagnamagn.
    5.690 kr. á mánuði.

    Flotta Netið
    Alltaf mesti hraði.
    10 GB erlent gagnamagn.
    4.690 kr. á mánuði.

    Huggulega Netið
    Alltaf mesti hraði.
    5 GB erlent gagnamagn.
    3.690 kr. á mánuði.

    Þeir rukka fyrir umfram magn, á meðan að síminn gerir það ekki….

    Hjá símanum kosta 60 gig á mánuði 5990, á meðan að 40 gig hjá Vodafone kosta 5690……

  11. Gravatar Icon 11 Daníel Sunnudagur 30. ágúst 2009 kl. 09:48

    ég gleymdi að segja, að þú nærð hvort sem er aldrei neinum almennilegum hraða, þannig að aðalmálið hlýtur að vera DL magn.

  12. Gravatar Icon 12 Maggi Sunnudagur 30. ágúst 2009 kl. 11:33

    Maður nær alveg almennilegum hraða innanlands. Á 50Mb/s ljósi er maður verður að dl. innalands á rúmum 6MB/s en það fer náttúrulega eftir hvaðan maður er að sækja.

    Vonandi fáum við að sjá aukið gagnamagn á næstunni og ekki síður að það séu aðeins “skrúfaðir upp” þessir blessuðu útlandalinkar hjá símafyrirtækjunum.

  13. Gravatar Icon 13 heybe Sunnudagur 30. ágúst 2009 kl. 14:12

    Ég heyrði að Síminn ætli með þessum nýju leiðum að byrja að bjóða fólki að kaupa sér auka magn í stað þess að cappa tenginguna strax. Veit ekki hvort þetta sé satt eða logið þó.

  14. Gravatar Icon 14 harabanar Mánudagur 31. ágúst 2009 kl. 13:10

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!