
Í dag kynnti Apple opinberlega að nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins, Mac OS 10.6 Snow Leopard, sé væntanlegt þann 28. ágúst fyrir aðeins $29, sé uppfært úr Leopard. Eins og flestir vita er uppfærslan aðallega hugsuð til þess að auka afköst, bæta hraða og gera ýmsar endurbætur en ekki er mikið af nýjungum í kerfinu sjálfu.
Uppfærsla:
Verðið á Snow Leopard hjá IceMac verður 5490 kr. m. vsk. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær kerfið lendir hérlendis.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Hvað kostar það fyrir okkur aulana sem eru ennþá í Tiger?
Eru 29 dollarar þá verðið út úr búð hérna heima?
hvað þarf ég að borga fyrir snow leopard þegar ég kem í apple búðina og sýni þeim að ég eigi original leopard……. í ísl. kr
?
Ætli verðið hérna heima verði ekki reiknað út svona (29*128 = 3712 * 2= 7424 og svo plús vaskur) Verður eitthvað rétt undir 10.000 Mattador-krónur.
5490 kr.
er ekki málið að panta bara á apple.com
Ég held að 5490 sé mjög sanngjarnt verð.
Guðmundur: það er býsna erfitt.
Verður hægt að kaupa þetta á föstudaginn hjá ykkur ?
Bara til að ítreka tvær spurningar hér að ofan:
Hvað verður verðið fyrir “Tiger aulana?”
og hvenær verður kötturinn kominn í hús?
-E
Ekki er enn vitað hvenær hann kemur í hús. Fylgist með á http://www.apple.is/frettir og á Maclantic.
Læt ykkur vita um leið og við vitum e-ð.
Ég verð nú að segja að þetta er ekki slæmt verð Bjöggi. Kaupi um leið og þetta lendir.
Á maður að mæta með os X OEM diskana sína eða?
Gott mál og fínt verð
Hjalti, ekki það að ég sé með einhverjar áreiðanlegar staðreyndir en ég myndi giska á að snow leopard sé upgrade pakki, sem þýðir það að maður þarf ekkert að sanna fyrir neinum að maður eigi Leopard fyrir. Maður þyrfti samt Leopard til þess að Snow Leopard diskurinn geti virkað. Ég hef allavega ekki séð neina sérstaka install diska fyrir Tiger og önnur eldri kerfi, og það að maður þurfi að mæta með einhverja sönnun fyrir Leopard eign sinni fyndist mér afskaplega hallærislegt. (Gæti þá kannski verið að maður þurfi að versla Leopard+Snow Leopard til þess uppfæra upp úr eldri kerfum?)
en eins og ég segi, þetta er allt saman bara ágiskanir hjá mér.
Þarft enga sönnun, bara hafa Leopard innsett á vélina þína áður en þú innsetur Snow Leopard
Mér finnst að maður verði að geta svarað 10 spurningum um Leopard rétt til að fá að kaupa Snow Leopard.
Ef maður nær því svo ekki getur maður reynt aftur eftir ár.
Þar sem þetta er upgrade, er þá ekki hægt að gera clean install? Ég er með Leopard en mundi vilja formatta og hafa hreinan disk í stað þess að keyra þetta yfir núverandi stýrikerfi.
Biggi P.:
Okkur datt frekar í hug tening. Ef þú lendir ekki á 6 þá færðu ekkert. Bara koma eftir 1 ár. Hehehe.
Jóhann:
Jú, það er bara örlítið öðruvísi í Snow Leopard Installation… þarft að fara í Utilities valblaðið, velja Disk Utility og þar erase disk. Svo velja install.
Fann þetta í grein um snow leopard hjá NY Times:
“Have they lost their minds? Operating-system upgrades always cost a hundred-something dollars! ($30 is the price if you already have Leopard. If not, the price is $170 for a Mac Box Set that also includes two suites of Apple software: iLife (iPhoto, iMovie, iDVD, iWeb and the GarageBand music studio), and iWork (the Numbers spreadsheet, Pages word processor and Keynote presentation software).”
Þannig að þú þarft að spreða svolitlum pening ef þú splæstir ekki í Leopard á sínum tíma….
Þú getur nota “Upgrade” diskinn þó að þú sért með Tiger. Eini munurinn er EULA sem segir að þú verður að eiga Leopard. Diskurinn tékkar ekki á því hvort þú eigir Leopard, bara þín samviska. Svipað og að kaupa family pack ef þú ætlar að setja á fleiri ein 1 tölvu.
Haldið þið að það verði þannig að maður þurfi ekki nauðsynlega að vera með Leopard diskinn? Ég keypti mína tölvu upphaflega með Tiger og uppfærði í Leopard skömmu eftir að hann kom. Í dag hef ég hins vegar ekki aðgang að disknum þar sem mín fyrrverandi borgaði fyrir hann (family pack) og tók með þér um það leiti sem hún varð fyrrverandi.
Það fer að koma tími á tiltekt í vélinni, ætli það væri þá nóg að eiga Snow Leopard upgrade til að strauja?
Og hér er Mac OS X 10.6 Snow Leopard Compatibility List http://snowleopard.wikidot.com/
Eins gott að allt virki þegar maður er búinn að installera…