
Jæja, kæru Maclantic-meðlimir! Þrátt fyrir kreppuna og rislágt yfirbragð landans þessa dagana, ömurlega fjárhagslega framtíð næstu tuttugu árin – eða einsog pabbi gamli sagði: „Öll þau ár sem ég á enn eftir ólifað”, undrun og reiði okkar á síðustu tillögum um bónusa uppá tíu milljarða hjá Straumi – fjárfestingabanka og yfirleitt þá súrealísku upplifun að vera borgari þessa lands einmitt núna þegar tæplega ár er liðið frá upphafi hrunsins, láta Maclanticmenn ekki deigan síga heldur vaða fram á völlinn með lauflétta verðlaunagetraun: Ertu Makkanörd?
Verðlaunin eru ekki af verri endanum (er átt við brauð?) – 5 leyfi fyrir póstforritið Mailplane verða dregin út úr réttum svörum þeirra sem taka þátt og send á viðkomandi heppna notendur. Einu skilyrðin fyrir þátttöku er að vera meðlimur Maclantic og eiga gmail-netfang. (Það má þó taka þátt og verða sér úti um netfangið síðar.)
Og þá hefst getraunin: (spurningar eru á ensku til að fyrirbyggja lögsókn minnihlutahópa á Íslandi – svör sendist til webmaster@maclantic.is)
Spurning númer eitt: How many buttons are enabled by default on a standard Mac mouse?
(a) 1
(b) 2
(c) 3
(d) 4
Spurning númer tvö: The 1984 TV ad introducing the Mac was shown during what event?
(a) FIFA World Cup
(b) Winter Olympics
(c Super Bowl
(d) Academy Awards
Spurning númer þrjú: In Mac OS X, in which menu would you find Shut Down?
(a) Apple
(b) Special
(c) Start
(d) Power
Spurning númer fjögur: Which of these chips has never been a Mac CPU?
(a) Motorola 68000
(b) Motorola PowerPC 601
(c) Zilog Z80
(d) Intel Core Duo
Spurning númer fimm og sú síðasta: Which of the following could HyperCard not attach HyperTalk script to?
(a) Buttons
(b) Cards
(c) Stacks
(d) Desktop
Gangi ykkur sem allra best
Smany buttons are enabled by default on a standard Mac mouse?
How many buttons are enabled by default on a standard Mac mouse?




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Mailplane er snilldarforrit, hvet alla til að taka þátt. Fyrir þá sem ekki vinna í þessum leik en eru námsmenn þá er veittur ágætis afsláttur af forritinu fyrir þá. Ég nýtti mér þann afslátt og er rosalega sáttur við þetta forrit!
Þarf maður að vera mikill nörd til að geta þetta?
Ég sé að það er búið að leiðrétta stafetningarvilluna í Motorola. Ég er viss um að nokkrir hafa sent það inn sem svar við spurningunni eins og ég gerði
(Tricky Question) Leiðinda mistök hjá höfundi þessarar getraunar.
Buddhabar
Hvað í ósköpunum meinar hann með lögsókn frá minnihlutahópum á Íslandi??
Hvað með Íslendinga sem tala ekki ensku? Það er minnihlutahópur sem er mismunað hér
hehe