
Apple hefur uppfært Time Capsule og er nú með tvöfaldri gagnagetu.
Sama verð verður á græjunni, þ.e. 1TB verður á sama verði og 500GB var á; $299 í BNA og 2TB á sama verði og 1TB; $499.
Samkvæmt vefsíðu Apple eru nýju gerðirnar tilbúnar til afgreiðslu strax í Bandaríkjunum, eða sent út innan við sólarhring. Búast má við nýju gerðunum hérlendis á næstu vikum. Tilkynnt verður um það á fréttasíðu Apple.is á næstunni.
Nánari upplýsingar um Time Capsule fást hér.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Er þetta ekki ennþá of dýrt, svona miðað við muninn á þessu og t.d. flakkara, sem getur gert það sama? Ég bara spyr…..
Þetta er nú soldið meira en flakkari…
Jú jú, auðvitað er það rétt. Fyrir mig er aðal valuið í þessari vöru sjálfkrafa backup, sem er innbyggt í OS X, snilld. Ég geri það í dag með venjulegum USB flakkara.
Flott vara sem að mig langar í, en finnst of dýr.
Ég er kannski ekki nógu mikill Makka-nörd?
“Ég er kannski ekki nógu mikill Makka-nörd?”
Alls ekki… þú einfaldlega þarft ekki á þráðlausri stöð með innbyggðum router.
Þetta er virkilega gagnlegt fyrir þá sem eru með fartölvu og vilja hafa allt þráðlaust. Sérstaklega fyrir fleiri en einn notanda.