Ný þjónusta á Maclantic: iTunes kort

www.maclantic.is/itunes

Vegna aukinnar eftirspurnar hef ég ákveðið að bjóða notendum að kaupa iTunes kort í gegnum Maclantic.

Það hefur komið í ljós að margir hafa lent í miklum vandræðum vegna svika á iTunes kortum í gegnum tíðina og hef ég því ákveðið að bjóða upp á þessa þjónustu fyrir notendur Maclantic.

Um er að ræða 100% lögleg kort sem keypt eru í Bandaríkjunum og fær fólk afhent mynd af kortinu ásamt kóða.

$50 iTunes kort verða til boða og kosta þau $60 stykkið.

Íslendingar hafa hingað til getað keypt sér 100% lögleg kort frá t.d. Maximuscards.com. Lesendur verða að gera sér grein fyrir því að innkaupaverðið á kortunum er það sama og andvirði þeirra. Ýmis færslugjöld koma frá Paypal. Einnig tekur vinur minn 50% af hagnaði fyrir umstangið. Með því að versla hér getið þið því verið 100% örugg um að kortin séu lögleg og – þið styrkið Maclantic samfélagið í leiðinni.

Eitt mjög mikilvægt atriði:

Aðgangur getur verið lokaður vegna fyrri kaupa viðkomandi aðila af ólöglegum kortum (hugsanlega án ykkar vitneskju). Þess vegna ráðlegg ég ykkur að stofna nýjan aðgang nema þið séuð 100% viss um að fyrri viðskipti ykkar á núverandi aðgangi hafi verið byggð á 100% löglegum iTunes kortum. Leiðbeiningar um hvernig stofna skal nýjan aðgang fylgir hverju keyptu korti.

Nánar um afgreiðslu korta og skilmála má nálgast hér:

www.maclantic.is/itunes

2 svör við “Ný þjónusta á Maclantic: iTunes kort”


  1. Gravatar Icon 1 Hilmarstefans Þriðjudagur 24. nóvember 2009 kl. 23:12

    Ef aðganginum mínum hefur verið lokað er einhver leið ad flytja draslid sem eg er buin ad kaupa mer á nýjan account?

  2. Gravatar Icon 2 Bjöggi Miðvikudagur 25. nóvember 2009 kl. 23:53

    Nei, því miður.

    Lenti sjálfur í að öllu var lokað hjá mér eftir ansi mikil viðskipti á löglegum kortum (og því miður eitthvað sem var talið “ólöglegt” án minnar vitundar).

    Þannig að ég þurfti að byrja upp á nýtt.

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!