Western Digital kynnir 1TB fartölvudisk

Í dag kynnti Western Digital til sögunnar tvær gerðir af 2,5″ hörðum diskum, en sú stærð er notuð í flestum tegundum fartölva í dag.

Um er að ræða stærðirnar 750GB og 1TB í WD blue flokknum (5400 RPM), en hingað til hefur stærsta gerðin verið 500GB og því um að ræða nokkuð stórt stökk hvað gagnageymslu varðar.

Hins vegar skal hafa í huga að þessir nýju diskar eru 12,5mm þykkir (venjulega eru 2,5″ diskar 9,5mm) sem þýðir að þeir passa því miður ekki í fartölvurnar frá Apple enn sem stendur.

Diskarnir verða seldir í utanáliggjandi USB 2.0 húsi og verðið er $189,99 fyrir 750GB og $249,99 fyrir 1TB.

Heimild: Hardmac.com

4 svör við “Western Digital kynnir 1TB fartölvudisk”


  1. Gravatar Icon 1 jonrh Mánudagur 27. júlí 2009 kl. 14:54

    Fail.

  2. Gravatar Icon 2 Bjöggi Mánudagur 27. júlí 2009 kl. 19:50

    Meinarðu með 12,5mm? Sammála….

  3. Gravatar Icon 3 Sigurður Stefán Flygenring Mánudagur 27. júlí 2009 kl. 19:51

    Damn, er einmitt að fara að kaupa mér stærri disk, og hefði keypt 1TB ef hann hefði passað….

  4. Gravatar Icon 4 Bjöggi Þriðjudagur 28. júlí 2009 kl. 00:52

    Ég væri alveg til í 1TB disk :)

    Þetta er samt mjög jákvæð þróun, það fer þá vonandi að styttast í 1TB sem er þynnri.

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!