
Apple mun koma með snertitölvu á markað, mjög líklega á fyrsta ársfjórðungi næsta árs, a.m.k. samkvæmt áreiðanlegum heimildum AppleInsider.
Síðan skýrir frá því að Apple séu að leggja lokahönd á þessa nýju tölvu, sem hefur verið mjög lengi í burðarliðnum. Miklar tafir á vélinni hafa stafað vegna mikillar hönnunnar og þróunarvinnu sem þurfti til að tækið gæti fullnægt öllum gæðakröfum Apple. Í greininni segir að helstu tafir á tækinu hafi verið vegna ákvarðana sem hafi þurft að taka í sambandi við örgjörvann. Í fyrstu hafi átt að notast við Intel Atom en seinna svo ákveðið að nota við ARM-örgjörva frá P.A. Semi, fyrirtæki sem Apple tók yfir fyrir nokkru. Nú lítur svo út fyrir að Steve Jobs sé loks sáttur við vöruna en samkvæmt heimildum hefur hann meira að segja fylgst með þróun hennar úr sjúkrarúmminu.
Tölvan mun að öllum líkindum líkjast iPhone í hönnun en talið er að hún muni hafa 10” snertiskjá og 3G netkort, sem Verizon Wireless myndi hugsanlega veita þjónustu í stað AT&T.
-Myndin sem fylgir er aðeins teikning af hugsanlegu útliti tölvunnar en engum myndum hefur verið lekið ..ennþá.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Aumingja Wacom…
LOL