Apple skýrir frá hagnaði þriðja ársfjórðungs 2009

picture-2

Í gær kynnti Apple fjármálaniðurstöður síðasta ársfjórðungs og allar sölutölur. Fyrirtækið mun þá hafa skilað $8.34 milljörðum í tekjum með $1.23 milljörðum í hagnað sem er tæplega 15% aukning miðað við sama tíma í fyrra, þess má geta að alþjóðlegar sölur námu 44% af heildartekjum. Séu miðað við aðra ársfjórðunga sem ná ekki yfir jólamánuðina er þessi sá besti í sögu fyrirtækisins.

Apple seldi 2.6 milljón Macintosh tölvur á fjórðungnum, sem er 4% aukning frá sama tíma í fyrra (ath. að árið 2008 var 41% aukning í sölum). 10.2 milljónir iPod spilara voru seldir, sem er 7% minnkun miðað við árið á undan. Síðast en ekki síst voru 5.2 milljón iPhone símar seldir sem er hvorki meira né minna heldur en 626% aukning frá sama ársfjórðungi síðasta árs (þá voru seldir 717.000).

Hægt er að hlusta á fundarsímtal þar sem niðurstöður eru ræddar hér.

0 svör við “Apple skýrir frá hagnaði þriðja ársfjórðungs 2009”


  1. Engin svör

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!