
Apple hefur í dag, 17. júní, gefið út nýjustu uppærslu iPhone stýrikerfisins – iPhone Software 3.0. Uppfærslan er fyrir alla iPhone síma(frítt) og iPod Touch (á $9.95 gegnum iTS). Í heild eru um 100 nýjungar í stýrikerfinu en þær helstu eru:
- Cut, Copy & Paste
- Landscape Keyboard
- Spotlight Search
- Voice Memos
- Improved Calendar
- Buy Movies, TV Shows, and Audiobooks
- Safari Improvements
- Internet Tethering
- Stereo Bluetooth
- Sync Notes
- YouTube Login
- Shake to Shuffle
- New Languages
- MobileMe Find My iPhone and Remote Wipe
Athugið að það þarf iTunes 8.2 til að uppfæra og fara skal varlega í að uppfæra hakkaða síma.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Snilld að fá loksins íslenskt lyklaborð!
Samt fyndið að það sé íslenskt keyboard en ekki hægt að kaupa hann á íslandi… kannski í bígerð?
Hmmm er ekki búið að vera íslenskt lyklaborð síðan 2.0 kom. Allavegana er ég búinn að hafa íslenskt lyklaborð alla mína iphone tíðo
Þetta er bara sömu lyklaborð og í ipod touch, or hann er seldur hér á landi. Það er líklega bara ástæðan
Hefur einhver fengið MMS eða “tethering” til að virka hérlendis?
Farðu inn á iPhone hluta spjallsins og þar eru flest uppkomin vandamál leyst!
Fyrir þá sem vilja virkja MMS sem eru hjá Vodafone þá er það gert svona
Settings > General > Network > Cellular Data Network > MMS
APN: mms.gprs.is
Username:
Password:
MMSC: http://mmsc.vodafone.is
MMS Proxy: 10.22.0.10:8080
Annað þarf ekki að fylla út en þið þurfið að endurræsa símann, og gefa þessu nokkar mín (þá á ég við allt 30)
Þegar MMS er virkt þá kemur greinilegt icon þar sem hægt er að velja myndir og skrár. Virkar mjög flott.
hvað gerir þetta “Find My Iphobe”
Find my iPhone er alveg frábært og virkar aðeins ef þú ert með MobileMe aðgang en þá getur þú fundið símann þinn og færð staðsetningu á korti (Google Maps) búin að prófa og virkar mjög vel. Þú getur líka skrifað skilaboð á skjáinn þannig að sá sem finnur símann verður líklega hræddur því þú veist nokkrun veginn hvar hann er, allavega í hvað hverfi hann er. Maður þarf reyndar að framkvæma nokkar stillingar til að þetta virki en virkar mjög flott.
Hvaða aðferð hafi þið notað til að virkja firmware 3.0 ? ég er kominn með það en get ekki fengið network enþá fyrr en ultrasnow kemur út?
Þessi nýja uppfærsla mun hún unlock sim vandamálið í iphone 3G? Þarf ég ekkert rebel sim kort þá?