Snow Leopard kemur út í september á $29

picture-1

Apple kynnti formlega í dag nýjustu útgáfu Mac OS X stýrikerfisins, 10.6 Snow Leopard. Stýrikerfið mun aðallega bæta stöguleika, afköst og vinnslu í stað þess að hlaða inn nýjungum. Snow Leopard mun koma út í september á aðeins $29 fyrir Leopard notendur.

Meðal fjölda nýjunga ber helst að nefna:

  • -Endurskrifaður Finder sem skilar sér í betri virkni og hraða.
  • - Microsoft Exchange stuðningur
  • - Quick Time X, ný og betri útgáfa Quicktime spilarans.
  • - 64 bita stuðningur við öll kjarna forrit, s.s. Mail, Safari, Quicktime ofl.
  • - Snow Leopard mun taka helmingi minna pláss á harða diskinum miðað við Leopard.
  • - Safari 4
  • - Nýtt iChat
  • - Crand Central Dipatch, tækni sem mun nýta fjölkjarna örgjörva mun betur en áður.
  • - Open Cl

Hægt er að lesa ítarlegri lista á Apple.com

11 svör við “Snow Leopard kemur út í september á $29”


  1. Gravatar Icon 1 alli Þriðjudagur 9. júní 2009 kl. 01:06

    get ég semsagt hent Entourage í haust? Á Mail loksins að geta stutt Exchange almennilega?

  2. Gravatar Icon 2 Sverrir Þriðjudagur 9. júní 2009 kl. 02:13

    Einnig, Intel only.

  3. Gravatar Icon 3 Baldur Þriðjudagur 9. júní 2009 kl. 03:12

    Það verður spennandi að sjá verðið þegar þetta kemur á klakann.

    Bölva því samt að þeir hafi ekki bætt Finderinn sem er einn helsti ókosturinn við makka.

    Niðurstaðan er samt sú að í fyrstu þá lítur þetta ekki út fyrir að maður uppfæri nema að þetta verði þeimun ódýrara.

  4. Gravatar Icon 4 Kristján Þriðjudagur 9. júní 2009 kl. 12:41

    Ummmm Baldur … Það fyrsta sem ég las um breytingar á kerfinu var einmitt að þeir eru búnir að endurskrifa Finderinn og svo segja þeir skýrt að kerfið verði mjög ódýrt eða aðeins $29.

  5. Gravatar Icon 5 Ingvar Þriðjudagur 9. júní 2009 kl. 23:43

    Dozens of small improvements in Mail make composing and editing HTML email messages more reliable. Þessu var ég að bíða eftir!
    Hef notað Entourage af því að það er ekki hægt að senda HTML póst með Mail öðruvísi en leturgerðir brenglist, allavega yfir í Windows.
    Vonandi líka hægt að hafa logo í signature.

  6. Gravatar Icon 6 Baldur Már Miðvikudagur 10. júní 2009 kl. 10:49

    @Ingvar
    það er hægt að hafa logo í signature með smá krókaleið:
    http://allforces.com/2006/04/14/css-signatures/

    Annars ef mig hefur langað að senda HTML-póst hef ég bara búið til html síðu, sett hana online og passað að hafa allar myndir með absolute path. Svo opna ég síðuna í Safari og geri slaufa-i :wink:

  7. Gravatar Icon 7 Hilmar Þór Miðvikudagur 10. júní 2009 kl. 15:06

    Beisik.

    Ég ætla að henda inn RC útgáfu til að testa.

    En vitið þið:

    1. Virkar CS4 pakkinn á Snow?
    2. Er í lagi að installa á external FW800 disk?
    3. Verð ég að installa öllu aftur eða get ég importað forritum í Snow?

    -Hilmar

  8. Gravatar Icon 8 Baldur Már Miðvikudagur 10. júní 2009 kl. 16:11

    @Hilmar
    Hingað til hefur MacOS uppsetning aldrei hreyft við neinum forritum sem maður kann að hafa á vélinni sinni hvort sem maður uppfærir eða gerir clean install. Líklega hefur það ekki breyst. Það er ekki nema þú formattir diskinn.

  9. Gravatar Icon 9 joivalli Föstudagur 12. júní 2009 kl. 00:52

    það var vesen með CS3 pakkann á sínum tíma þegar uppfærslan frá Tiger í Leopard kom sem tók smá tíma að laga…

    Einnig eru önnur minna þekkt forrit sem geta orðið fyrir óþægindum og vantar þá yfirleitt uppfærslur frá aðilanum sem býr þau til.

  10. Gravatar Icon 10 Hannes Mánudagur 15. júní 2009 kl. 12:17

    Ég er með tiger í imac 2,16 ghz með 3gb 667mhz í minni og er að pæla í því víst snow gerir allt hraðvirkara en leopard myndi hann þá hressa aðeins uppá mína líka, þorði ekki að fá mér leopard á sínum tíma smeukur um að mín vél réði illa við hann ??

  11. Gravatar Icon 11 Lalli-Oni Miðvikudagur 17. júní 2009 kl. 00:54

    Eina sem ég finn um verð á apple.com er 29$ ef að þú hefur keypt tölvu eftir 8júní 2008. Keypti nú mína fyrir allnokkru og er ennþá að nota Tiger. Veit einhver meira um þetta?

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!