
Í dag á WWDC kynningunni kynnti Apple næstu kynslóð iPhone símans, iPhone 3G S. Síminn ber nafn með réttu (S-ið stendur fyrir hraða) en hann er um tvöfalt hraðari heldur en fyrri gerð og hefur einnig betra batterí. Ný 3.0 megapixla myndavél er á iPhone 3G S og hefur býður hún m.a. uppá myndbandsupptöku og autofocus. Vert er að nefna að nú er loksins komin MMS stuðningur þannig að hægt er að senda myndir og myndskeið með skilaboðum. Apple hefur einnig bætt við nokkrum minniháttar möguleikum eins og Voice Control, stafrænum áttavita, Voice over og Nike+ stuðning ásamt fleiru, hægt er að lesa meira um það á síðu Apple. Síminn er nánast alveg eins í útliti og forveri hans en Apple hefur sett nýja húð á símann og lofa þeir að hún muni stuðla að minni fingraförum og færri rispum
Síminn mun koma með iPhone OS 3.0 beint úr kassanum, en sú uppfærsla býður uppá fjölda nýjunga s.s. Cut, paste, MMS og Spotlight leit.
Síminn kemur út 19 júní í 16GB og 32GB útgáfum á $199 og $299, en fyrri gerð símans, iPhone 3G verður seld í 8GB útgáfu á aðeins $99. Á næstu vikum mun síminn svo koma út í 80 löndum.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Loksins sími sem er farinn að vera almennilegt glósutæki! Myndavélin alvöru og kvikmyndaupptaka. Verst að maður er ennþá bundinn við símfyrirtæki og þarf væntanlega að borga tækið dýrum dómum eða vera á klikkaðri áskrift.
Engar fréttir af því hvenær við fáum að njóta símans í gegnum innlend símafyrirtæki?
Var ekki hægt að setja voice control t.d. með 3.0 software til þess að allir gætu notað það, en ekki bara bundið við nýja símann.
Síminn er kominn með stuðning fyrir íslenska stafi, en ísland var samt ekki á lista yfir markaðssvæði
iPhone 3g var líka með stuðning fyrir íslenska stafi, en er það ekki bara vegna þess að iPod Touch, sem er á Íslandi notar íslensku stafina ?
Þetta er nú ekki merkilegt, Nokia hefur verið með voice control í 10 ár, virkar aldrei almennilega, og mun örugglega ekki gera það á Iphone heldur.
Öll þessi tækni sem er ný í Iphone, er liklega 10 ára gömul hjá t.d. Nokia.
Vá, MMS stuðningur!!!
Vá, Voice control!!
Vá, vídeoupptaka!! Engum hefur dottið það í hug áður!!
Ekki misskilja mig, Iphone er geggjaður
og ég elska minn, en þessi nýju atriði er frekar lame. Eigum við ekki að segja að þetta sé kreppuuppfærsla!
Besta er nýja húðin, verður vonandi eins góð eins og á HTC Touch Dual t.d., sem skemmist aldrei. (Ömurlegur sími samt)
þetta er samt einmitt það sem ég t.d. beið eftir að kæmi næst..
MMS + Video, sárvantaði það þegar ég skipti úr 3G síma yfir í 2G Iphone
Þér hefur þá ekki dottið í hug að kaupa eitthvað annað en Iphone?
Við Makkanördar verðum að passa okkur að geta gagnrýnt þá líka, ekki bara taka öllu sem þvílíkri snilld, og sætta okkur við allt. Eins og t.d. það að geta ekki keypt sumar vörurnar þeirra…..
Daníel horfðu á þetta og segðu svo Vá
http://www.youtube.com/watch?v=E4aQpczZC00&feature=fvste1