Samkvæmt vef MacRumors gæti verið að næsta kynslóð af iPhone 3G verði með mattri bakhlið til að minnka rispur. Einnig er nefnt að síminn komi út í þremur útgáfum, eftir því hvað dreifikerfi hvers staðar býður upp á; 3G, bætt 3G og svo kínversk útgáfa. Talið er líklegt að símanum með bætta 3G kerfinu verði dreift í Bandaríkjunum til að unnt sé að nota nýja dreifikerfið þar, sem gerir niðurhal á allt að 7.2 megabitum á sekúndu kleyft.
Á vef iLounge kemur einnig fram að mögulegt gæti verið að iPod nano verði með áfastri myndavél, svipað og iPhone. Hann muni þó enn státa af hinu „geysivinsæla“ smelli-hjóli, sem margir furða sig á að skuli enn vera á iPod enda er sú uppfinning orðin fimm ára gömul.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Er einhvað að frétta af myndavél framan á símanum?
Þetta er nú frekar gömul mynd en gæti orðið að veruleika.
en þið vitið að þetta er bara bakhlið, enginn sìmi, gæti alveg eins bara einhver verið að leika sér með símann sinn en vonandi er þetta ný útgáfa!!
Já, eiginlega of gömul til þess að þetta sé alvöru prototype frá Apple.
Arnór Bogason skrifar:
Já, stórfurðulegt að menn skuli vera að nota þetta click-wheel ennþá, og ennþá furðulegra að lyklaborð séu ennþá í notkun!
Hvað með verð? verða bindisamningar enþá?