Hvíta MacBook tölvan frá Apple fæst nú með öflugri örgjörva, 2,13GHz í stað 2GHz, og stærri disk, 160GB í stað 120GB. Verð er óbreytt.
Samkvæmt þessu er ódýrasta fartölvan frá Apple með hraðvirkari örgjörva og jafn stórt geymslupláss og nýja ál-vélin, en augljóslega mun ódýrari. Munurinn á þeim liggur þá enn í að sú dýrari er úr áli, þynnri, léttari, sterkbyggðari, með hraðvirkari kerfisbraut og hraðvirkara vinnsluminni.
Það má spyrja sig hvort Apple sé að fara að uppfæra vélarnar sínar á næstunni eða einfaldlega hætta með milligerðina. Kemur í ljós.




(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.
0 svör við “Apple uppfærir hvítu MacBook í 2,13GHz”