Næsta kynslóð af iPhone með FM?

214239-chineseSamkvæmt orðrómi frá Kína (þar sem iPhone er m.a. settur saman og framleiddur) er sagt að næsta kynslóð af iPhone muni fá tiltölulega stóra uppfærslu að innanverðu.

Sagt er að s.k. stafrænn áttaviti verði innbyggður (sem gæti gagnast við notkun á GPS/Google Maps) ásamt FM. Hvort um sé að ræða FM-sendi eða FM-móttakara er ekki vitað, en líklegra þykir að um FM-sendi sé að ræða ef bæta á GPS möguleika símans í bílum. FM-móttakari ásamt sendi væri þó ekki verra.

Endurbætt myndavél með sjálfstýrðum fókus ásamt 3,2MP skynjara er sögð vera í nýja símanum. Þar að auki er talað um að örgjörvi símans verði 600MHz (í stað 400MHz), vinnsluminni hans 256MB (úr 128MB) og síðast en ekki síst að geymsluplássið verði 32GB.

Því má telja að næsta kynslóðin af iPhone verði fáanleg í 16GB og 32GB stærðum.

Verður spennandi að sjá hvort Apple kynnir svo nýjan síma á WWDC þann 6. júní.

AppleInsider.com

4 svör við “Næsta kynslóð af iPhone með FM?”


  1. Gravatar Icon 1 Einar Þriðjudagur 12. maí 2009 kl. 10:16

    Hvernig er myndavélin sem er í 1g símunum ?

  2. Gravatar Icon 2 Bjöggi Þriðjudagur 12. maí 2009 kl. 10:18

    Einar:
    Hún er 2MP. Sem er ekki slæmt per se, en hún gefur mjög óskýrarar og lélegar myndir.

  3. Gravatar Icon 3 Einar Þriðjudagur 12. maí 2009 kl. 12:24

    Já allveg rétt, frekar tæp myndavélin í símanum sem er synd miðað við hversu flott tæki þetta er.

  4. Gravatar Icon 4 Carlos Þriðjudagur 12. maí 2009 kl. 18:13

    Ég fer ekki að hrópa af fögnuði (hvað þá kaupa) fyrr en iPhone inniheldur a.m.k.

    sæmilega myndavél >3mp
    kvikmyndavél > 640*480
    gps (að minnsta kosti fyrir göngu)

    auk þess sem þegar er komið.

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!