Eins og margir okkar þekkja til er WWDC einn stærsti atburður ársins hjá Apple hvað hugbúnað varðar.
Í ár verður Apple með kynningu (að vana) þar sem iPhone 3.0 stýrikerfið verður gefið út og sumir segja að nýtt iPhone tæki sé á leiðinni.
Sérstök kynning verður á næsta OS X stýrikerfinu fyrir makkann sem ber heitið „Snow Leopard“ þar sem farið verður yfir eiginleika þess, endurbætur og að sjálfsögðu útgáfudagur þess kynntur.
Orðrómurinn segir að Final Cut Studio 3 og nýtt Logic muni einnig sjá dagsins ljós, en það kemur bráðlega í ljós.
Ráðstefnan hefst þann 8. júní og stendur yfir í fimm daga.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Held reyndar að þetta séu fimm dagar. 8-12. júní og föstudagurinn tólfti þá meðtalinn.
Já, passar. Leiðrétt