Nýi iPod-spilarinn frá Apple fær mjög dræmar móttökur og þykir mörgum ákvörðun Apple um að fjarlægja stýrihnappa frá spilaranum mikil afturför.
iLounge hefur fengið spilarann í hendurnar og skrifað ágæta grein um hann. Nokkrir góðir punktar eiga rétt á sér í dómnum og þar á meðal má nefna:
- Hvernig notar maður iPod shuffle með öðrum heyrnartólum? Hvað þá græjum?
- Maður þarf loks að lesa leiðbeiningarnar til þess að geta notað spilarann / Flókinn
- Of dýr / Var frá $49, er nú frá $79
Apple virðist hafa „leyst“ fyrsta vandamálið með því að gefa út snúru með mini-jack tengi sem hefur að geyma fjarstýringu. Hana þarf þó að kaupa sérstaklega og er þá iPod shuffle vægast sagt orðinn nokkuð dýr spilari.
Lesið grein iLounge hér.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Ég er nokkuð spenntur fyrir þessum nýja iPod shuffle. Minni er betra þótt sá fyrri var nú ekki stór. Ég á 2nd gen nota hann í ræktinni og líkar vel við, vantar þó möguleika á playlist og podcast sem nýji spilarinn er með, ekki sakar að hafa 4GB. Ég kaup þennann pott þétt þegar ég fer næst út(tími ekki að kaupa iPod á Íslandi vegna tollanna).
Apple hefur örugglega úthugsað eitthvað snilldarlegt og illt plan, annað hvort til að græða meira, eða einfaldlega til að taka yfir heiminn.
Hedfon frá öðrum framleiðendum að koma á markað fyrir shuffle.
http://i.gizmodo.com/5168683/scosche-earbuds-first-to-support-new-shuffles-voiceover-controls
Engadget menn eru síður en svo sáttir við hvernig nýi shuffle virkar og þá sérstaklega hvað varðar heyrnatól:
http://www.engadget.com/2009/03/15/third-party-ipod-shuffle-headphones-will-require-apple-licensed/
Þú segir hérna:
Of dýr / Var frá $49, er nú frá $79
Auðvitað er hann aðeins dýrari enda er hann 4GB í stað 2GB.
Petur:
já ég geri mér nú grein fyrir því að hann er stærri.
Það sem ég meina er að þeir ættu að hafa tvær gerðir eins og áður, þá 2GB á $49 og 4GB á $79 t.d.
Þeir selja enn gömlu gerðina – gæti verið að þeir kynni 2GB af nýju gerðinni þegar eldri klárast á lager. Vonum það allavega
Klárlega. Ekki það að ég hafi nokkurn tíma verið spenntur fyrir Shuffle.
Bjöggi:
Ok fatta núna hvað þú áttir við.