Apple kynnir nýjan iPod shuffle

ipodshuffle_image1_20090311jpg

Apple kynnti í dag nýjan iPod shuffle, minnsta tónlistarspilara í heimi, að þeirra sögn. Sá nýji er um helmingi minni heldur en gamla gerðin og hefur 4GB geymslupláss. Þessi nýji spilari hefur þann hæfileika að geta talað við mann en sá möguleiki kallast VoiceOver og getur spilarinn sagt manni hvaða lag hlustað er á eða þá hvaða lagalistar eru í boði.

picture-1

Vert er að taka fram að stjórnborðið er ekki lengur á spilaranum sjálfum heldur á snúrunni en það sparar mikið pláss. Nýja gerðin kemur sem áður sagði með 4GB geymsluplássi og er til í svörtu og silfurlituðu á $79.

11 svör við “Apple kynnir nýjan iPod shuffle”


  1. Gravatar Icon 1 Þorgeir Miðvikudagur 11. mars 2009 kl. 18:42

    Ég spyr bara, hvar er tengið fyrir tölvuna…?
    Þetta er ekkert smá tiny…

  2. Gravatar Icon 2 Guðjón Miðvikudagur 11. mars 2009 kl. 18:50

    Það er bara eins og á þeim gamla. Fer í gegnum headfónatengið.

  3. Gravatar Icon 3 Agli Miðvikudagur 11. mars 2009 kl. 19:37

    AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA!!!

  4. Gravatar Icon 4 Bjöggi Miðvikudagur 11. mars 2009 kl. 19:58

    Virkilega fallegir spilarar

  5. Gravatar Icon 5 Pétur Miðvikudagur 11. mars 2009 kl. 20:36

    Þessi og iPhone eru á fermingar-listanum.

  6. Gravatar Icon 6 Hjalti.se Miðvikudagur 11. mars 2009 kl. 23:19

    Það ótrúlega hefur gerst

    http://www.theonion.com/content/video/apple_introduces_revolutionary

    “To rewind -triple click and hold central button?”

    Þetta er asnalegasta vara sem hefur verið búinn til!

    Onion hafði rétt fyrir sér, fanboys kaupa hvaaaað sem er.

  7. Gravatar Icon 7 haraldur Fimmtudagur 12. mars 2009 kl. 00:11

    æi mér líst ekki á þessa takkafóbíu… þetta er mikið flóknara en gömlu góðu takkarnir

  8. Gravatar Icon 8 Siggi Fimmtudagur 12. mars 2009 kl. 00:39

    Flottur spilari og allt það, en takkana þarf að endurhanna finnst mér.

  9. Gravatar Icon 9 Jóhann Fimmtudagur 12. mars 2009 kl. 12:55

    Þessir taakar eiga eftir að venjast skil ekki hvernig fólk lifði af án voiceover

  10. Gravatar Icon 10 Gummi Fimmtudagur 12. mars 2009 kl. 17:29

    Er ekki hrifinn af staðsetingu takkana ! ég vill geta notað hvaða heyrnatól sem er, eða get ég það kannski ?

  11. Gravatar Icon 11 Ólafur Fimmtudagur 12. mars 2009 kl. 21:02

    Mér finnst að þeir hefðu átt að hafa touch screen á fremri hliðinni fyrir takka það hefði verið geiðveikt svalt, að hafa takana á head phone er ekki sniðugt ef maður vil nota annan head phone hvernig skiptir maður þá um lag

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!