Mikilvæg atriði varðandi nýju vélarnar – uppfært

mac_early_2009

Margar og miklar uppfærslur voru í dag kynntar á Mac mini, iMac og Mac Pro eins og margir hafa tekið eftir.

Nokkra áhugaverða punkta er vert að nefna hvað varðar breytingarnar, en ekki hefur einungis innihaldið breyst heldur uppfærslumöguleikar hvað vinnsluminni varðar og ýmsir fylgihlutir eins og Apple Remote hættir að fylgja með.

Blátt+ (til hins betra)
Rautt = - (afturför/mætti bæta)

zz55d0b001

Mac mini

  1. Mun hraðvirkara og betra skjákort fyrir leiki og Hi-Def afspilun (NVIDIA GeForce 9400M)
  2. Nýtt og hraðvirkara 1066MHz DDR3 vinnsluminni uppfæranlegt í 4GB (áður 2GB)
  3. Styður 1x dual-link DVI sem þýðir allt að 2560 x 1600 upplausn (áður 1920 x 1200)
  4. Styður tvo skjái með allt að 1920 x 1200 upplausn
  5. SuperDrive í öllum gerðum
  6. Nýtt 802.11n Wi-Fi kort
  7. FireWire 800 tengi í stað FireWire 400 – auka USB tengi
  8. Fjarstýring fylgir ekki lengur með

zz04f577c82

iMac

  1. 24″ gerðin komin í „mid-range“ og því ódýrari en áður
  2. Öflugari skjákort sem henta betur í þyngri grafíkvinnslu (ATI Radeon HD 4850)
  3. Mun meira harðdiskpláss en áður (320GB / 640GB)
  4. 8GB vinnsluminni valkostur (áður 4GB)
  5. Aðeins 1920 x 1200 upplausn fyrir aukaskjá (mætti vera 2560 x 1600)
    Breytt/leiðr. á Apple.com: Stuðningur fyrir 2560 x 1600 upplausn á aukaskjá
  6. Eitt FireWire 800 tengi (áður FW400 og FW800)
  7. Auka USB tengi
  8. Fjarstýring fylgir ekki lengur með

zz3bc9892c

Mac Pro

  1. Vinnsluminni stækkanlegt í 8GB í ódýrustu gerðinni (32GB í dýrari)
  2. Öflugari skjákort sem henta í þyngri grafíkvinnslu
  3. Verðlækkun um $300 á ódýrustu gerðinni
  4. PCI Express 2.0 raufar
  5. 3GB vinnsluminni fylgir ódýrari gerðinni, 6GB stærri
  6. Þráðlaust netkort fylgir ekki (og hefur ekki gert hingað til)
  7. Turbo Boost dynamic performance (allt að 3,33GHz á 8-core 2,93GHz gerðinni)
  8. Eitt Mini DisplayPort og eitt dual-link DVI tengi

Uppfærsla: upplausn á aukaskjá tengdur við iMac er mest 2560 x 1600, en ekki 1920 x 1200 eins og stóð á Apple.com fyrr í dag.

10 svör við “Mikilvæg atriði varðandi nýju vélarnar – uppfært”


  1. Gravatar Icon 1 Þriðjudagur 3. mars 2009 kl. 22:00

    Varðandi Mac Pro, það hafa ekki alltaf verið þráðlaus kort í þeim. Við erum með 3 svona vélar (týpuna á undan þessum nýju held ég) og það var ekki þráðlaust í neinni þeirra, þurftum að bæta því sérstaklega í.

  2. Gravatar Icon 2 Bjöggi Þriðjudagur 3. mars 2009 kl. 22:05

    Hö:
    Það er satt, enda kemur það fram hér að ofan.

    “Þráðlaust netkort fylgir ekki, eins og áður

    Edit: Ah, ég fatta hvað þú meinar… þarf að endurorða þetta. Takk ;)

  3. Gravatar Icon 3 Rúnar Þriðjudagur 3. mars 2009 kl. 23:28

    það er líka gay að nota borðtölvu sem þráðlausa

  4. Gravatar Icon 4 Birgir Þór Bragason Miðvikudagur 4. mars 2009 kl. 07:32

    Hefð nú haldið að flestar MacPro væru tengdar með snúru. Meiri hraði og færri truflanir. Vélin væri dýrari í grunninn ef þráðlausa kortið væri í henni.

  5. Gravatar Icon 5 Siggi Þór Miðvikudagur 4. mars 2009 kl. 08:01

    Flott grein… þægilegt að sjá breytingarnar með þessu móti!

  6. Gravatar Icon 6 Agli Miðvikudagur 4. mars 2009 kl. 15:58

    Hvers vegna er slæmt að mögulegt sé að stækka minnið í 8 GB?

  7. Gravatar Icon 7 Bjöggi Miðvikudagur 4. mars 2009 kl. 16:46

    @ Agli:
    Því það var 32GB..

  8. Gravatar Icon 8 Óli Jón Miðvikudagur 4. mars 2009 kl. 20:09

    Varðandi 8GB max í ódýrari Mac Pro. Er það ekki bara eins og það hefur verið að ef maður kaupir minni frá öðrum en apple að þá geti maður fengið meira en það sem apple segir að sé max? gæti verið 16GB

  9. Gravatar Icon 9 Bjöggi Miðvikudagur 4. mars 2009 kl. 20:20

    Óli:
    nei varla þar sem þeir eru að bjóða 4GB kubba í stærri vélinni af sama vinnsluminni (1066MHz).

    Þetta er chipsetið sem einfaldlega styður ekki meira en 8GB.

    Ég vona þó að þetta sé rangt, því þetta væri OK ef það væri max 16GB.

  10. Gravatar Icon 10 Óli Jón Miðvikudagur 4. mars 2009 kl. 20:25

    Bjöggi:
    Krossleggjum fingur :wink:

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!