
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum koma út nýjar gerðir af Mac mini og iMac á morgun, en í flestöllum tilvikum þegar gefur Apple út nýjar vörur gerist það á þriðjudegi.
Borist hefur mynd á netið af hugsanlegum Mac mini pakkningum sem sést hér að ofan.
Mac mini mun hafa eftirfarandi eiginleika ef marka má orðróminn:
- 5x USB tengi
- 1x FireWire 800
- 1x mini-DVI
- 1x mini DisplayPort
- NVidia skjákort (eins og finnst í MacBook)
- Intel Core 2 Duo 2.0 GHz og stærri
- 1 og 2 GB DDR3 vinnsluminni (stækkanlegt í 4 GB)
- 120 GB harður diskur (stækkanlegt í 320 GB)
iMac mun innihalda og fást í:
- fjórum gerðum; ein 20″ og þrjár 24″
- 2.66 Ghz, 2.93 Ghz og 3.06 Ghz Intel Core 2 Duo
- 1x mini DisplayPort tengi
- 20″ með 2GB DDR3 vinnsluminni; 24″ með 4GB DDR3 (stækkanlegt í 8GB)
Athugið að um er að ræða orðróm og því ekki hægt að staðfesta ofangreindar upplýsingar. Kemur í ljós á morgun (vonandi)!




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Lame uppfærsla á Mac mini!!