Áætlað er að Mac mini, iMac og Mac Pro fái dágóða uppfærslu í næstu dögum eða vikum samkvæmt ýmsum Mac-fréttasíðum.
Stórar líkur eru á því að Mac Pro fái Nehalem örgjörvana frá Intel og iMac Quad-Core örgjörva. Einnig má telja að Mac mini fái nýja skjákortið frá NVidia (9400) og að sjálfsögðu nýjan örgjörva, en stærstar breytingar ættu að vera á þeirri tölvu þar sem hún var síðast uppfærð í ágúst 2007.
Nýju tölvurnar munu þá fá ný skjákort og styðja Mini DisplayPort staðalinn sem Apple hefur valið að nota í framtíðarvörum sínum.
Ef skoðaður er eftirfarandi listi er nokkuð öruggt að segja að tími sé kominn til að uppfærsla sé í nánd:
- Mac Pro
síðast uppfærð fyrir 419 dögum síðan – 217 dagar er meðaltalið - iMac
síðast uppfærð fyrir 308 dögum síðan - 211 dagar meðaltal - Mac mini
síðast uppfærð fyrir 573 dögum síðan – 188 dagar meðaltal
Orðrómurinn segir að Apple verði með sérstaka kynningu 24. mars næstkomandi, en það verður tíminn sjálfur að leiða í ljós.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
0 svör við “Nýjar tölvur í mars?”