
Newer Technology hefur gefið út nýja HDD-kví, Voyager Q, sem gerir manni kleift að tengja utanáliggjandi SATA diska (bæði 2,5″ og 3,5″) við tölvuna án mikillar fyrirhafnar.
Voyager Q Quad Interface Drive Dock er með öllum mögulegum tengjum: USB2, eSATA, FireWire 400 og FireWire 800.
Eins og sést á myndinni er harða disknum einfaldlega stungið í kvína og birtist hann þá á skjáborðinu án auka hugbúnaðar. Stuðningur er fyrir Mac OS X 8, 9 og 10.2 og nýrra ásamt Windows sem er býsna gott m.v. flestar hýsingar í dag.
Verð í BNA er $97.99 en hægt er að panta vöruna á Macsales.com.
Sjá vörulista Macsales hér.




(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.
Þetta lítur út eins og brauðrist