Þeir heppnu sem gáfu bestu ástæðu fyrir því að þeir ættu að fá Things for Mac voru Bragi Bergþórsson og Freyr Ómarsson.
Hér eru ástæður Braga:
Mér finnst að ég eigi að fá eintak af Things vegna þess að það myndi hjálpa mér að vera ekki alltaf svona djöfulli mikill sauður. Getur maður verið sauður að eilífu? Ég held ekki.
Ég gæti td. verið búinn að leggja á minnið og kortleggja leið mína að heimsfrægð, verið búinn að búa til skipulag um hvernig ég geti dreift gjafakaupum handa konunni, sett upp heilsteypta dagskrá fyrir bleijuskiptingar á barninu, munað eftir því að fara í heimsókn til afa og ömmu og síðast (af upptöldum atriðum) en ekki síst verið fáránlega þakklátur fyrir svona geðveikt forrit.Ég held ég geti bara ekki verið án Things.
…og Freys:
Ég hef alltaf átt í vandræðum með að skipuleggja minn tíma. Hef verið talin frekar óskipulagður maður og ávallt gengið eftir því, þ.e. hef oft misst sjónar á verkefnum og þ.a.l af lestinni líka. Núna er ég á fyrsta ári í háskóla og einnig að stofna sprotafyrirtæki og því nauðsynlegt að skipuleggja tímann vel eins og flestir vita. Byrjaði á að skrifa niður í venjulega dagbók þau dagsverk sem þurfti að koma af stað en náði aldrei að fylgja því eftir almennilega. Síðan rakst ég á Things eftir að hafa lesið um það á Maclantic og náði í mér í prufuútgáfu.Ég var undrandi á því hversu þægilegt og auðvelt er að nota þetta forrit. Þetta hjálpaði mér að koma verkefnum í gang og fylgja þeim fast á eftir. Eftir viku var ég búinn að koma öllu því í verk sem ég planaði í byrjun og er þetta fyrsta forritið sem ég hef virkilega verið ánægður með hvað varðar GTD.Þar sem þetta forrit er orðið nauðsynlegur partur af mínu lífi bæði hvað varðar skóla og vinnu er ég kominn í smá klípu þar sem ég hef ekki nægilega mikla aura til þess að fjárfesta í þessu verkefni. Því tel ég mig vera verðugan vinningshafa í þessari keppni hjá ykkur.
Til hamingju með vinninginn strákar! Njótið vel.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Alltaf jafn gaman að taka þátt í keppnum. Alltaf jafn súrt að vinna ekki.
Óska vinningshöfum til hamingju.
Fór í beinu framhaldi og keypti loksins Things (sem ég hef notað núna alltof lengi án þess að kaupa). Ótrúlegt hvað þetta forrit hefur náð að koma nýju lífi hér á Spáni af stað.
Hafði notað OmniFocus (og eytt í það ALLTOF miklum pening finnst mér) e-h þar áður en skipti yfir í Things stuttu eftir að það var opið fyrir almenning. Fannst OF algjör snilld til að byrja með en þegar á leið, of mikið GTD. Things fer ekki alveg jafn stíft eftir GTD en ýtir manni þó í áttina. Það hamlaði mér alltaf í OF að líf mitt hentaði ekki alveg kerfi Allen.
Það er mjög skemmtilegt að sjá hversu mikið þessi “To Do” forrit eru að blómstra á Makkanum. Ég hef borið sum þessara forrita, bæði á Mac og Win, saman og það er magnað að sjá muninn í framsetningu á milli. Eitt annað forrit sem er á uppleið er “The Hit List” frá Potion Factory. Lítur svaðalega vel út, en ég e-hveginn efast að það nái að slá Things út í notagildi. Um að gera að prófa samt.
kv, tobs