
Bæði MacRumors og AppleInsider hafa birt mynd af hugsanlega nýjum Mac mini en mikið hefur verið talað um nýja útgáfu undanfarið, sérstaklega fyrir Macworld. Líklegt þykir að Nvidia muni koma að gerð nýs kubbasetts en ekkert er þó staðfest í þeim efnum. Einhverjar upplýsingar um vélbúnað fylgdu myndinni en þær eru auðvitað algjörlega óstaðfestar sem og myndin.
- 2GHz Core 2 Duo, 3MB Level 2 cache,
- 2GB 1066MHz DDR3 RAM
- ATA Super Drive.
Auk þess sjást á myndinni 5 USB tengi, mini DVI, hið nýja Mini Display Port og FW800 tengi.
[Viðbót/Bjöggi: Tvö skjátengi sem þýðir dual-display! Loksins...]




(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.
Gott að sjá að þeir eru ekki að henda FireWire tenginu úr Mini-inum.
Bjöggi, ertu viss um að þetta sé Dual-Display? Eru virkilega tvö skjákort í græjunni?
Halldór:
það var allavega orðrómurinn.. ég samt e-h veginn efast um þessa mynd að ofan. 5 USB tengi? Hljómar ekki eins og Apple. Af hverju eru bara þrjú tengi á iMac?
Ég held að við fáum að sjá eitthvað flottara. Vona ég – og þá líklega dýrara.
Ég verð samt að segja að mér finnst þetta líta eitthvað svo photoshop-lega út.
Sérstaklega þessi usb tengi…..
Ég væri geðveikt til í að sjá græju sem er í stíl við nýju MB línuna, rúnnuð horn, ál og svartur háglans. Jafnvel græja af sömu þykkt og AirPort Extreme og Time Capsule.