Mac-klónar sjást víðar

ZZ1CCFAF30.jpgMargir þekkja Psystar sem byrjuðu á því að selja PC tölvur með Mac OS X stýrikerfinu án leyfis frá Apple. Nú er kominn enn annar framleiðandi og það í Evrópu.

Fyrirtækið er þýskt og heitir PearC. Þar er hægt að kaupa ýmsar stærðir og gerðir af turntölvum og er verðið frá €499 með sendingarkostnaði. Sent er innan Evrópu á stærstu löndin en Ísland er eins og stendur ekki með á listanum.

Svo er tímaspursmál hvenær Apple fer að leggja kærur á hendur PearC fyrir að selja búnað með Mac OS X stýrikerfinu innsett.

pearc.com

4 svör við “Mac-klónar sjást víðar”


  1. Gravatar Icon 1 jont Sunnudagur 8. febrúar 2009 kl. 13:21

    væri þá ekkert að því ef að þeir seldu hana án os x?

  2. Gravatar Icon 2 Bjöggi Sunnudagur 8. febrúar 2009 kl. 14:19

    Þá væri þetta í raun PC vél með EFI-X giska ég á. Ekkert ólöglegt við það.

    Það er hins vegar ólöglegt að dreifa og auglýsa vélbúnað með Mac OS X án samþykkis frá Apple.

  3. Gravatar Icon 3 Atli Mánudagur 9. febrúar 2009 kl. 21:31

    En ef að þú myndir kaupa hana af þeim væri þá stýrikerfið þitt ólöglegt eða hvernig væri það?

  4. Gravatar Icon 4 Bjöggi Mánudagur 9. febrúar 2009 kl. 22:40

    Atli:
    Jah, á þann veg að það er hreinlega ekki stutt af Apple. Gæti verið að framtíðarupdate einfaldlega virkar ekki.

    Get ekki sagt til um það.

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!