Vinningshafi „Things for Mac“

ZZ7F4110CB1.jpgÞað var mjög strembið að velja réttan aðila, en mér barst yfir þriðja tug skeyta og voru þar flestallir með mjög sannfærandi rök fyrir því að það ætti skilið að fá Things í boði Maclantic og Cultured Code.

En því miður þá var einungis hægt að velja einn notanda og sá heppni er Daníel Frímannsson!

Ég ætla að leyfa mér að birta skeytið frá Daníel:

Góðan og blessaðan daginn,
Ég heiti Daníel Frímannsson og var að klára doktorsnámið mitt í efnafræði þar sem ég var að þróa ljósvirkt krabbameinslyf.

Í gegnum þau fjögur ár sem námið tók, þá var ég alltaf að leita að öflugu forriti sem gæti hjálpað mér að skipuleggja mig betur (betur þá meina ég í staðinn fyrir post-it miða sem hanga á ísskápnum og um herbergið mitt). Því miður, þá hef ég ekki haft nógan pening á milli handana til að kaupa þetta forrit en þegar ég náði í prufuútgáfuna varð ég mjög hrifinn af því sem ég sá.

Í stuttu máli þá myndi þetta forrit hjálpa mér gífurlega í skipulagningu við nýdoktorsstöðuna sem ég er í núna. Staðan felur í sér kennslu, eintómir fundir og ráðstefnur, deadlines. Þar að auki eru skipulagning á vinnunni, hvað á að gera á hverjum degi.
Að auki yrði þetta húrrandi hjálp við fjárhag stúdents í útlöndum.

Til hamingju Daníel! Þín bíður póstur með ókeypis útgáfu af Things for Mac.

8 svör við “Vinningshafi „Things for Mac“”


  1. Gravatar Icon 1 Daniel Frimannsson Fimmtudagur 22. janúar 2009 kl. 22:22

    Takk æðislega fyrir mig! Gæti grátið eins og fegurðardrottning af hamingju! Takk enn og aftur!

  2. Gravatar Icon 2 Óli Jón Fimmtudagur 22. janúar 2009 kl. 22:42

    Til hamingju með sigurinn og námið :)

  3. Gravatar Icon 3 Halldór Eldjárn Föstudagur 23. janúar 2009 kl. 00:19

    Til hamingju! Hvað felst í ljósvirku krabbameinslyfi? Ég spyr af einskærri forvitni.

  4. Gravatar Icon 4 Kiddi Föstudagur 23. janúar 2009 kl. 01:37

    mér sýnist þetta vel valið hjá Bjögga.

    Ég er samt búinn að eyða honum af msn og facebook núna.

    ;)

  5. Gravatar Icon 5 Agli Föstudagur 23. janúar 2009 kl. 07:46

    Arg.

  6. Gravatar Icon 6 Daniel Frimannsson Föstudagur 23. janúar 2009 kl. 09:53

    @Halldór : Í stuttu máli er þetta efni sem kemst inn í frumur og bindst við erfðaefni þeirra. í myrki gerist ekkert fyrir frumurnar en þegar að ljós af ákveðni bylgjulengd skín á frumur þá deyja þær. Með þessu væri hægt að nota ljósgeisla (eins og rauða ljósgeislann í laserpennum) til að eyða krabbameinsfrumum. Ef þú vilt vita nánar þá svara wiki hérna http://en.wikipedia.org/wiki/Photodynamic_therapy
    Takk Bjöggi enn og aftur!

  7. Gravatar Icon 7 Orri Laugardagur 24. janúar 2009 kl. 16:11

    Mikilvægur hæfileiki rannsóknarmanna er að geta skrifað góðar umsóknir fyrir styrki. Sá hæfileiki hefur komið að gagni hér :)

  8. Gravatar Icon 8 Robbi Laugardagur 24. janúar 2009 kl. 17:28

    Things líkist Kgtd / OmniFocus skuggalega mikið… en væri gaman að prófa þetta.

    Kemur vel út í samanburði við önnur GTD forrit fyrir makka:

    http://www.putthingsoff.com/osx-task-manager-showdown/

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!