Hjálpartól sem erfitt er að gleyma

Viltu vinna eintak af Things fyrir Mac?

Einn heppinn aðili verður dreginn út! Sendu einfaldlega tölvupóst á vefstjori(hjá)maclantic.is og segðu mér af hverju þú eigir að fá eintak. Tilkynnt verður um vinningshafa í næstu viku.

ZZ7F4110CB1.jpgThings

Í daglegu lífi er ýmislegt sem ég þarf nauðsynlega að muna og annað sem skiptir minna máli og má bíða betri tíma. Það sem fyrst kemur upp í kollinn er „jah, ég nota auðvitað Mail og iCal til að sinna þessum erindum“ en því miður hefur engum tekist það nógu vel. Þangað til nú…

Ég rakst á forritið „Things“ á vefrápi um daginn og ákvað að prófa það eftir að hafa skoðað myndskeið sem lýsti því nokkuð vel. Það sannaði sig strax og stóðst kröfur mínar sem minnisleysingja svo vægast sé sagt.

Things frá fyrirtækinu Cultured Code er líklegast best lýst sem svo að
þú einfaldlega manst eftir öllu sem þú þarft að gera“.

ZZ60604CD6.png

Ekki þarf sérstaklega að skipta yfir í forritið til að bæta við minnismiða. Einfaldlega er notuð flýtiskipun sem birtist fyrir ofan alla glugga (t.d. ctrl-alt-space) þar sem hægt er að skrifa meginmál, flokka minnismiðann og jafnvel tengla skjöl, slóð eða mynd beint í athugasemdir hans. Hér sjáið þið dæmi:

ZZ70DABDB8.jpg

Flokkunarkerfið er eitt af því þægilegasta sem finnst. Það er hægt að birta einungis flokka sem þig langar að sjá, t.d. „Vinna“ eða „Heimaverkefni“ og einnig eftir tímaramma. Ekki þarf sérstaklega að búa til flokka, heldur býr forritið til nýja um leið og notandinn skrifar þá niður á minnismiðann.

Meðal margra fídusa er einnig hægt að búa til verkefni og innan í því minnispunkta sem hægt er að tengja saman. Þetta hentar sérlega stærri verkefnum.

Virkar með iPhone og iCal

Það sem gerir forritið enn skemmtilegra er að það fæst einnig fyrir iPhone (og iPod touch) í App Store. Mjög vandað og einfalt forrit sem syncar sig við Things á Mac á þráðlausu neti.

Things tengist og færir einnig upplýsingar í iCal án vandræða.

Slóðir o.fl.

Things fyrir Mac
Things fyrir iPhone
Myndband (mæli með því)

Einnig er hægt að ná í prufueintak á vefsíðu þeirra hér.

17 svör við “Hjálpartól sem erfitt er að gleyma”


  1. Gravatar Icon 1 Jelonet Þriðjudagur 20. janúar 2009 kl. 23:05

    Búinn að nota þetta forrit í nokkra mánuði og finnst það algjör snilld! Það er eiginlega ekkert minna ómissandi en iCal, Mail og Address book og ætti eiginlega að fylgja með Mac OS X!!

  2. Gravatar Icon 2 harabanar Miðvikudagur 21. janúar 2009 kl. 10:17

    Shit .. þetta er NÁKVÆMLEGA það sem ég var að leita mér að. Ég er alltaf í vandræðum með þetta. Hef veirð a ðprufa helstu To Do forrit í iPhone. Ég hef mikið notað Google Calendar go loksins com Sync möguleiki við iCal, og þar með gat ég loks fengið Google Calendar í iPhone-inn.

    En ég gæti alveg trúað því að þetta mundi losa mig við allt það vesen.

    Ég sendi þér tpóst :P

  3. Gravatar Icon 3 Bjöggi Miðvikudagur 21. janúar 2009 kl. 10:28

    Þetta er nefnilega þrælsniðugt forrit.

    Varðandi ókeypis eintak:

    Það hafa borist mörg email með ýmsum skemmtilegum ástæðum. Ég læt ykkur vita á fimmtudaginn hver hlýtur vinninginn :)

  4. Gravatar Icon 4 Geiri Miðvikudagur 21. janúar 2009 kl. 10:41

    Ég hef verið að nota þetta núna síðan önnin byrjaði og hefur hjálpað mér mjög vel að skipuleggja lærdóminn og fleiru sem ég þarf að sinna.

  5. Gravatar Icon 5 Kalli Miðvikudagur 21. janúar 2009 kl. 11:46

    það má kannski líka benda á web based lausnir eins og http://www.rememberthemilk.com og todoist.com

  6. Gravatar Icon 6 Erlingur Miðvikudagur 21. janúar 2009 kl. 11:58

    Flott. Mér sýnist þetta (m.v. Next og Someday) vera unnið útfrá “Getting Things Done” eða GTD skipulagskerfinu – ef menn hafa áhuga á lifehacks eða að auka eigið skipulag þá mæli ég með bókinni sem ber sama nafn.

  7. Gravatar Icon 7 Erlingur Miðvikudagur 21. janúar 2009 kl. 12:28

    Notaði þetta í marga mánuði og keypti þetta svo þegar útgáfa 1.0 kom út. Snilldar forrit!

    Ekki skemmir að iPhone útgáfan er ótrúlega þægileg líka!

  8. Gravatar Icon 8 Runar Miðvikudagur 21. janúar 2009 kl. 19:05

    má semsagt útskýra þetta á íslensku afhverju ÉG eigi að fá þetta forrit

  9. Gravatar Icon 9 Jóhannes Gunnar Miðvikudagur 21. janúar 2009 kl. 19:22

    ég notaði þetta forrit á tímabili en fyrir svona “daily stöff” þá tel ég þetta ekki vera þess virði að eyða pening og CPU í það. text-edit og .txt skjöl er málið.

  10. Gravatar Icon 10 Jóhannes Gunnar Miðvikudagur 21. janúar 2009 kl. 19:22

    PS: ekkert óþarfa bruðl ;)

  11. Gravatar Icon 11 Agli Laugardagur 21. febrúar 2009 kl. 08:51

    Er það nógu góð útskýring á því hvers vegna ég ætti að fá forritið að segja að mig langi barasta í þetta forrit?

  12. Gravatar Icon 12 Baldur Laugardagur 21. febrúar 2009 kl. 16:50

    Gaman að sjá þessa frétt sem er dagsett: 20. febrúar með commentum sem eru dagsett 20. janúar

  13. Gravatar Icon 13 Bjöggi Laugardagur 21. febrúar 2009 kl. 16:52

    Þessi “frétt” var send út fyrst 20. janúar.

    Í samstarfi við Cultured Code ákvað ég að endurnýja fréttina og gefa annað eintak af forritinu.

  14. Gravatar Icon 14 Sverrir Guðmundsson Laugardagur 21. febrúar 2009 kl. 17:01

    Ég hef notað Things í ca. 1 mánuð eftir umfjöllun hér á maclantic :smile: Hef ekki mikinn samanburð nema e.t.v. við iCal.

    Kostir: Eitt af því sem mér finnst þægilegt við þetta forrit er hve einfalt að fella hluti saman undir sérstakt „verkefni“ (t.d. undirbúningur ferðalags, stórt skólaverkefni o.s.frv.). Svo saxast (vonandi) á þessa liði hvern af öðrum. Það þarf ekki að velja neinn flokk strax þegar maður hamrar inn minnisatriði heldur er hægt að draga minnismiðann seinna yfir í flokkinn með einni músarhreyfingu. Sem sagt: Mjög einfalt.

    Gallar: Hef ekki komist upp á lagið með að setja inn tímasetningar innan dagsins (þ.e. hvenær dags á að framkvæma hlut eða mæta á einhvern stað úti í bæ). Þarna finnst mér iCal hafa yfirburði því þetta er mjög einfalt þar. Þeir sem hafa náð tökum tímasetningunum í Things mega endilega skilja eftir athugasemdir hérna.

  15. Gravatar Icon 15 Kristinn Sunnudagur 22. febrúar 2009 kl. 11:46

    ég endaði á því að kaupa mér þetta snilldar forrit.

    mig vantar reyndar ennþá fyrir símann minn en vantar inneign í iTunes Store til þess.

    En forritið er að brillera og ég hlakka til að læra betur inná það.

  16. Gravatar Icon 16 Rúnar Sunnudagur 22. febrúar 2009 kl. 13:58

    Þurfum við þá að endursenda ný rök afhverju við ættum að fá forritið frítt?

  17. Gravatar Icon 17 Bjöggi Sunnudagur 22. febrúar 2009 kl. 14:03

    Rúnar:
    Góð spurning. Já.

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!