
Fyrir ekki svo löngu síðan töldu margir að dagar Mac mini tölvunnar væru taldir. Núna búast þó allir við nýrri kynslóð tölvunnar á síðustu Macworld kynningu Apple í næstu viku. TUAW vefbloggið hefur tekið saman sínar helstu upplýsingar um nýju tölvuna.
Þeir segja að líklegt verði að nýji Mac mini muni hafa SATA tengi fyrir diskadrifið og því muni vera hægt að bæta við öðrum hörðum disk í vélina í stað diskadrifs, en það kemur sér til dæmis vel ef tölvan er notuð sem server. Segjast þeir þá nokkuð vissir um að hann eigi eftir að líkjast Time Capsule að því leytinu til að sama skrítna raufin verði á honum. Hún mun þó fá aukið fagurfræðilegt hlutverk í þetta skiptið þar sem hún mun fela opið fyrir diskadrifið. Fram kemur einnig að tölvan muni vera úr álumgjörð sem fyrr en nú með svörtu plasti. -Hvíti liturinn er greinilega ekki lengur í hlýjunni hjá Apple.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Glæsilegt. Finnst mini-inn mjög sniðugur, og það væri synd að hætta með þá.
Persónulega spái ég að Mac mini verði án geisladrifs eins og Air, en hægt að bæta við utanáliggjandi Superdrive. Þetta yrði þá gert til að geta haft öflugri tölvu með auka rauf fyrir harðan disk.
Þá væri einnig mögulegt að hafa utanáliggjandi Blu-ray lesara, það væri perfect fyrir þá sem eru að nota tölvuna við flatsjónvarpið sitt
Annars er nýjasti orðrómurinn að Mac mini muni hafa tvö skjátengi, þannig að hægt sé að tengja tvo skjái.
Verður gaman að sjá..
Veit einhver hvenœr þessi nýji Mac-mini verdur komin í bùðir her à landi?
Er þad ekki afturför hjà þeim ad œtla ad hafa hann bara í svörtu?
Ef einhver veit svarid vid fyrri spurningunni minni, þà mœtti hann senda mer svarid beint à lancelot@fjorskak.is