MacUpdate, sem er vinsæl vefsíða fyrir Mac-hugbúnað, hefur gefið út jólapakka sem inniheldur mörg forrit á mjög lágu verði.

Um er að ræða pakka sem hefur að geyma 10 forrit og kostar aðeins $49:
- Drive Genius 2 ($99): Fer yfir og lagar vandamál sem tengjast harðdisknum, stýrikerfinu o.fl.
- RapidWeaver 4 ($79): Búðu til flotta heimasíðu á stuttum tíma
- DefaultFolder X 4 ($34.95): Farðu í gegnum “Open” og “Save” glugga á „ljóshraða“
- VirusBarrier X 10.5 ($69.95): Hratt og einfalt vírusvarnarforrit.
- MacGourmet Deluxe ($44.95): Líkt og iTunes, nema fyrir mat / uppskriftir.
- LittleSnitch 2 ($29.95): Fylgist með nettengingum til að ganga úr skugga um að Makkinn þinn sendir einungis þær upplýsingar sem þú vilt.
- KeyCue 4 ($27): Sýnir flýtihnappa fyrir öll forrit.
- MacPilot 3 ($19.95): Fáðu aðgang að földum fídusum til þess að sérsniða og efla upplifun þína á Mac OS X.
- WhatSize 4 ($12.99): Finndu skjöl sem eru að taka mikið pláss á disknum.
- iVolume 3 ($29.95): Tryggir að öll þín iTunes lög afspilast á sama hljóðstyrk.
Tilboðið gildir í tvær vikur og því um að gera að nýta sér tækifærið á meðan það gefst.
Persónulega mæli ég með Rapidweaver fyrir þá sem vilja búa til flotta heimasíðu á stuttum tíma (mun fleiri möguleikar en í iWeb).
Einnig er LittleSnitch þess virði að hafa til staðar. Þessi tvö forrit réttláta nú þegar kaupin þar sem þau eru yfir $100 ef keypt á listaverði.
Styrkjum hugbúnaðarþróendur Mac OS X til þess að tryggja góð og öflug forrit í framtíðinni.
(Ath. Maclantic er ekki á nokkurn hátt tengt þessu tilboði)




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Hvaða gengi ætli maður fái á kortið?
Hefur einhver verið að versla eitthvað fyrir dollara á kredit kort nýlega?
Reyndar hefur krónan verið að styrkjast sem betur fer.
Þú sérð gengið á http://www.valitor.is fyrir t.d. VISA
Stoltur eigandi þessara pakka. hlakka sérstaklega til að nota macGourmet og Drrive Genius