
Komið hefur í ljós að nýju MacBook og MacBook Pro fartölvurnar hægi töluvert á sér sé rafhlaðan fjarlægð og einungis tengdar við spennugjafa.
Prófanir, framkvæmdar af Electronista, gefa þær niðurstöður að örgjörvinn hægi það mikið á sér að einungis 63% af afli hans er nýttur.
Ástæðan er sú að spennubreytirinn nær ekki að sinna orkuþörfum tölvunnar sem gæti leitt til þess að hún hreinlega slökkvi á sér. Því sé óumflýjanlegt að minnka afl tölvunnar verulega (um 37% skv prófunum) undir þessum kringumstæðum.
Því er tvímælalaust mælt með að eigendur nýrra MacBook tölva noti tölvurnar með rafhlöðu þegar hún er tengd við rafmagn.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Til að rafhlaðan gefi sig fyrr og kaupa þarf nýja frá Apple fyrir slikk?
Er það ekki 37%? Þetta finnst mér samt frekar skrítið.
Skrýtið. Þarf að rannsaka frekar.
Hvað er málið, afvherju eru Humac ekki farnir að selja nýju týpuna? Eru þeir að losna við gamla lagera fyrst?
Nei, það er verið að hanna lyklaborðin á tölvurnar.
Why bother að taka rafhlöðuna úr in the first place ? svo rekur maður sig í MagSafe snúruna og allt deyr…
Nær vélin þá að viðhalda hleðslu á batteríinu þegar hún er í gangi???
-Nákvæmlega það sem ég var að spá…
Ef maður er að nota tölvuna svolítið hressilega í eitthvað þungt eins og tölvuleiki eða 3D vinnslu á meðan hún er í hleðslu og fer síðan með hana á kaffihús t.d. er þá rafhlaðan tóm?
Er með nýja MacBook Pro….rafhlaðan í tómu tjóni
Gerði smá “tilraun” og setti gömlu góðu iBook fullhlaðna á sleep sem og nýju tölvuna. Daginn eftir var iBook í 98% hleðslu en nýja fína Pro talvan var komin niður í 74% !!!!!! Að öðru leyti er nýja talvan hrein SNILLD
En hvernig er það þá ef þú ert með í sambandi og rafhlaðan eyðist í þungri vinnslu ertu þá ekki líka að rústa rafhlöðunni með að vera með tölvuna fullhlaðna í sambandi, þeas ert í 100% dettur í einhverja vinnslu ferð niður í 95% og svo aftur í 100% osfrv.