
Þrátt fyrir fagurt útlit og einfaldleika Time Machine er fátt um kosti ef notandi vill einhverju um ráða hvenær afrit eru tekin. Reyndar eru engar stillingar þar að lútandi, Time Machine gengur sinn klukkustundarsporbaug hvað sem tautar og raular. Þetta getur sett strik í reikninginn þegar menn eru að vinna með stórar skrár, afl tölvunnar fer að stórum hluta í afritstökuna – sérstaklega á minni og eldri vélum og truflar vinnslu viðkomandi. Auðvitað er fólk líka með mismunandi þarfir í þessum efnum, sumum nægir að taka afrit einu sinni á dag, öðrum vikulega.
Einhver snillingur í Frakklandi ákvað að þetta gengi ekki lengur og hefur gert lítið og frítt forrit sem leyfir okkur að stilla nákvæmlega hve oft og hvenær á tíma sólarhrings Time Machine taki til starfa: TimeMachineEditor.

Eftir að notandi hefur sett sínar stillingar inn kemur fram eini ókosturinn við forritið, ef ókost skyldi kalla, inni í stillingum Time Machine helst gamli tíminn sem segir að næsta afrit verði tekið eftir klukkutíma. (Sem er ekki rétt því TimeMachineEditor hefur tekið yfir tímastillingar) Þetta leiðir maður bara hjá sér enda smámál.
Hægt er að endursetja auðveldlega sjálfgefnar stillingar Time Machine í forritinu.




The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.
Snilld!
Nú tekur Time Machine afrit einu sinni hverja nótt og tölvan orðin laus við tímavélarafleiðuheilkennið sem hrjáði hana.
Jei!:)
Já, mér finnst algjör óþarfi að hafa backup á klst fresti… best að láta þetta malla á nóttunni.
Mér finnst samt stærsti gallinn við TimeMachine að maður getur ekki valið bara hvaða möppur afritast, bara hvaða möppur afritast ekki.
Óþægilegt ef maður er ekkert að stressa sig t.d. á að backa upp system files og svona og vill t.d. bara taka afrit af t.d. tónlist og documents:/
Þetta verður örugglega mun öflugara í Snow Leopard. Verður spennandi að fá það eintak í hendurnar
Er alveg sáttur með Time Machine, sérstaklega miðað við að þetta er bara fyrsta útgáfan. Eigum örugglega eftir að sjá hana breytast eitthvað.
Hef notað þetta forrit frá fyrstu tíð og mæli með því. Virkar vel og engin vandræði.