USB 3.0 gefur tífalt meiri hraða

Á ráðstefnu WinHEC (Windows Hardware Engineering Conference) um daginn kom fram að nákvæmar upplýsingar (specifications) um nýja USB 3.0-staðalinn yrðu gefnar út mánudaginn þann 17. nóvember.

Samkvæmt heimildum gefur nýi staðallinn, USB 3.0, a.m.k. tífaldan hraða ef miðað er við USB 2.0 eða allt að 5Gbps!

Nokkrar tafir hafa verið á þessum staðli, en kosturinn við USB 3.0 er að hann virkar með eldri útgáfum (USB 2.0 og USB 1.1).

Hér sést hraðamunur á hinum þremur USB-stöðlum þegar flutt er 25GB HD-kvikmynd:

USB 1.1: 9,3 klst.

USB 2.0: 13,9 mínútur

USB 3.0: 70 sekúndur

Talið er að USB 3.0 komi á markaðinn 2009/2010 en spurningin er hvort að FireWire 3200 nái einhverjum vinsældum fyrir þann tíma.

T.a.m. hefur Apple „útrýmt“ FireWire tenginu í nýju MacBook-tölvunum og ekki hefur fyrirtækið sýnt því áhuga í iPod-spilurunum né MacBook Air.

Þetta verður að teljast merkilegt af fyrirtæki sem heillaði fyrrnefnda staðal (FireWire) fyrir ekki svo löngu síðan.

Intel.com/pressroom

4 svör við “USB 3.0 gefur tífalt meiri hraða”


  1. Gravatar Icon 1 Siggi Laugardagur 15. nóvember 2008 kl. 12:01

    Enn Æjj Ess, næs!

  2. Gravatar Icon 2 Árni Laugardagur 15. nóvember 2008 kl. 15:03

    Pff.. usb :P

    firewire ftw !!

  3. Gravatar Icon 3 Hetjan Laugardagur 15. nóvember 2008 kl. 20:24

    Heillaði staðal?!?

  4. Gravatar Icon 4 Alfreð Sunnudagur 16. nóvember 2008 kl. 05:45

    þetta er allveg svakalegt :) lýtur út fyrir það að framt´+iðin er björt í tölvuheiminum allt að verða margfalt fljótlegra! :)

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Engadget:

The Apple iPad. The name is a killing word -- more than a product -- it's a statement, an idea, and potentially a prime mover in the world of consumer electronics.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!