Færa gögn úr Windows í Mac? Belkin Switch-to-Mac hefur svarið

ZZ2DEDD5C0.jpg

Belkin hefur kynnt til sögunnar eitt þægilegasta tól, að svo virðist vera, til þess að færa öll nauðsynleg gögn frá Windows yfir í Mac.

Um er að ræða USB2-snúru ásamt hugbúnaði sem flytur allar stillingar, hljóðskrár, myndir og ýmis skjöl yfir í Mac og flokkar það í réttar möppur.

Þetta ætti að auðvelda lífið fyrir marga nýja Mac-notendur sem vilja ná í öll sín gögn úr Windows-vélinni yfir á Makkann.

Verð á dýrðinni er um $50 USD, sem er um 8.500 ÍSK með VSK.

Nánar um Belkin Switch-to-Mac

7 svör við “Færa gögn úr Windows í Mac? Belkin Switch-to-Mac hefur svarið”


  1. Gravatar Icon 1 Hilmar Fimmtudagur 13. nóvember 2008 kl. 16:51

    hmm jaaaá. Hvað gerir maður svo við tækið.. Upp í hillu?

  2. Gravatar Icon 2 Snorrib Fimmtudagur 13. nóvember 2008 kl. 17:17

    ha? hvað meinaru?

  3. Gravatar Icon 3 Agli Fimmtudagur 13. nóvember 2008 kl. 17:35

    Hann spyr hvað maður ætti að gera við svona græju þegar búið er að nota hana til gagnaflutninganna. Hann meinar að maður myndi aldrei nota svona oftar en einu sinni. Sem er líklega rétt, nema maður auðvitað selji hana strax aftur.

  4. Gravatar Icon 4 Agli Fimmtudagur 13. nóvember 2008 kl. 17:38

    En það er gott að svona lagað sé loksins komið á markaðinn. Hefur auðvitað alltaf verið dáldið erfitt fyrir Windows gaura að switcha.

  5. Gravatar Icon 5 Snorrib Fimmtudagur 13. nóvember 2008 kl. 18:42

    nei ég myndi nota þetta stanslaust, kannski ef að þú vilt fá eitthvað stöff hjá vini þínum eða annað. Ætla pottþétt að fá mér svona!

  6. Gravatar Icon 6 atlisd Fimmtudagur 13. nóvember 2008 kl. 21:15

    Spurning hvort þetta virki í hina áttina? Mac to PC…?

  7. Gravatar Icon 7 Siggi Miðvikudagur 26. nóvember 2008 kl. 00:35

    Einhver kominn með svona?

Tjáðu þig!




Auglýsingar

Maclantic á Facebook

Kommentið á Epic Games:

(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.

Joy of Tech

Nýjasta Joy of Tech!