Svo virðist sem fartölvurisinn Toshiba hafi tekist að slá út markaðinn með því að gefa út nýja fartölvulínu með heilum þremur skjákortum.
X305, eins og línan heitir, hefur að geyma nýja skjáhraðalinn frá NVIDIA; 9400M (eins og finnst í nýjustu MB Air, MacBook og MB Pro) ásamt tveimur öðrum kortum sem vinna saman með s.k. SLI. Um er að ræða samtvinnun tveggja NVIDIA 9800M GTS skjákorta þegar mest á reynir í þrívíddarvinnslu í t.d. leikjum.
Herlegheitin kosta frá $1999 uppí $4199, eftir innihaldi og eru þær allar með 17″ skjá.
Varla er hægt að flokka blessuðu tölvuna sem fartölvu þar sem þyngd hennar er 4,1 kg, en til gamans má nefna er MacBook Pro 2,49 kg.
Til hliðsjónar hafa nýju MacBook Pro tölvurnar frá Apple tvö skjákort; NVIDIA 9400M skjáhraðal ásamt NVIDIA 9600M sem er sjálfstætt og gefur betri afköst hvað varðar þyngri grafíkvinnslu.
Heimild: DailyTech




(Um nýja iPad) This new device has more memory and higher screen resolution than an Xbox 360 or PS3.
Vá hvað þetta er ljót tölva!
Shit hún er svona 2″ á þykkt og vifturnar hljóma örugglega eins og flugmóðuskip.
Ég er með nokkrar fartölvur á mínum snærum sem ekki eru komnar á fermingarladur og eru heilar þrjár tommur þykkar og um 4 – 5 kg þungar. Drifnar áfram með Celeron eða PIII örgjörva …
Fleiri svona fréttir Bjöggi! Gaman að einhverju öðruvísi, eitthvað sem akkúrat í þver öfuga átt heldur en Apple
Ég gerði mér ferð í PCworld hérna um helgina og sá þessa dýrð með eigin augum. Þetta vildi ég ekki fá þó gefins væri.